Að mála sig út í horn Ingólfur Sverrisson skrifar 29. júní 2024 11:00 Ekki verður séð að minnimáttarkennd sé hótinu betri en oflátungsháttur. Síðustu vikur og mánuði hafa birst greinar eftir Hjört J. Guðmundsson þar sem hann útmálar hvað Ísland yrði lítið og pervisið ef við gengum að fullu inn í ESB og færðum okkur af göngum og náðhúsum inn á fundina þar sem mál eru rædd og ákvarðanir teknar. Hann gengur út frá því að þangað ættum við lítið erindi vegna smæðar þjóðarinnar og einstæðingsskapar. Yrðum jafnan borin atkvæðum í hverju máli sem við hefðum áhuga á að berjast fyrir enda skeyttu stóru þjóðirnar innan ESB ekkert um hagsmuni fámennari þjóðanna. Allt fyrir fram vonlaust og svart og betra að láta lítið á sér bera og fara með löndum jafnvel þótt miklir hagsmunir þjóðarinnar séu í húfi. Ef við hefðum nálgast baráttuna fyrir útfærslu landhelginnar með þessu hugarfari og þessari „reisn” bendir allt til að lítill árangur hefði náðst í því mikla hagsmunamáli. Sem betur fer voru rökin fyrir útfærslunni sett á þeim tíma upp skipulega, þau vandlega kynnt á alþjóðavettvangi enda þótt einhverjir hefðu (eins og nú) litla trú á að við gætum haft sigur á móti vilja og hagsmunum mun stærri og voldugri þjóða. En með vel uppbyggðum rökum og kröftugri málafylgju tókst að fá viðurkenningu á landhelginni enda þótt oft hafi blásið á móti og stríðsástand ríkjandi á tímabilum. Þá var ekki látið nægja að mæla hvað aðrar þjóðir væru fjölmennar, við fámenn og gefist upp fyrir fram. Nei, trúin á málstaðinn og samstaða þjóðarinnar skóp sigur. Ef Íslendingar hefðu hins vegar ekki haft þessa sannfæringu fyrir eigin málstað, hefðum við ekki getað vænst árangurs í þessu lífshagsmunamáli þjóðarinnar. Mig grunar að þáverandi forystumönnum þjóðarinnar liði ekki vel ef þeir kynntust þeim málflutningi sem nú lætur hátt og byggist á því að við séum bæði fá og smá og megum okkur lítils í alþjóða samstarfi. Nær að halda að þeir rífi nú hár sitt í Sumarlandinu vegna slíks útiboruháttar. Mörg dæmi eru þess innan Evrópusamstarfsins að minni þjóðirnar hafa barist fyrir hagsmunamálum almennings og úr hafa orðið reglur sem nú þykja sjálfsagður hluti réttinda fólksins á svæðinu. En hitt hefur löngum verið siður margra að tína aðeins úr hillum þau málefni sem ekki tókst að koma í gegn og nýta örlög þeirra til að sýna fram á að ekkert þýði fyrir þá minni að hafast að. Allt fyrir fram vonlaust. Hins vegar hafa þessir sömu svonefndu sérfræðingar forðast að nefna í skrifum sínum og málflutningi þau málefni sem náðst hafa fram og stuðla að bættum hag venjulegs fólks. Þegja um allt þvílíkt enda þjóna slík upplýsingaskrif ekki neikvæðum málflutningi um stefnu og störf ESB. Þótt minnimáttarkennd af þessum toga sé næsta hvimleið er þó engu betra að ofmeta eigin getu og færni. Það getur á sama hátt virkað hjárænulegt eins og þegar við héldum um síðustu aldamót að Íslendingar byggju yfir sjaldgæfum hæfileikum um meðferð fjármuna. Því jafnvel haldið fram af ábyrgum forystumönnum þjóðarinnar að þarna hefði verið um að ræða arfleifð frá tímum víkinga sem hefði þróast hér með yfirskilvitlegum hætti við ysta haf allri heimsbyggðinni til heilla. Margir létu glepjast af slíku gaspri en svo sprakk blaðran með skelfilegum afleiðingum. Athygli vekur að margir sem mærðu þetta „fjármálaævintýri” Íslands fylla nú hóp þeirra sem andæfa að við tökum sem sjálfstæð þjóð fullan þátt ESB-samstarfinu. Þannig virðist minnimáttarkenndin hafa tekið við af oflátungshættinum og heilli þjóð tekist að mála sig út í horn. Hímir þar nú þögul og hljóð og treystir sér ekki einu sinni til að ræða hvort upptaka evru og full aðild að ESB gæti verið farsælt skref fyrir land og þjóð. Getur staðan orðið öllu snautlegri? Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar