KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2024 14:01 KA-menn hafa unnið þrjá síðustu deildarleiki sína á móti ÍA með markatölunni 3-0. Vísir/Hulda Margrét KA-menn geta loksins komist upp úr fallsæti með sigri á Skagamönnum fyrir norðan í eina leik dagsins í Bestu deild karla í fótbolta.
Leikur KA og ÍA hefst klukkan 16.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. KA liðið steinlá 5-0 í síðasta leik sínum á móti Stjörnunni og hefur aðeins unnið einn af fyrstu átta deildarleikjum sumar. Fyrir vikið situr liðið í fallsætinu. Skagamenn eru með tíu stig, þremur sætum ofar og með tvöfalt fleiri stig en Norðanmenn. Stuðningsmenn KA ættu samt að vera bjartsýnir á góða útkomu úr þessum leik enda hefur gengið mjög vel á móti ÍA undanfarin ár. KA hefur unnið fjóra síðustu innbyrðis leiki liðanna í efstu deild og skorað í þeim ellefu mörk gegn engu. Í viðbót vann KA 2-1 sigur á ÍA í Lengjubikarnum i vetur. Síðustu þrír leikir liðanna í Bestu deildinni hafa endað með 3-0 sigri KA. Nökkvi Þeyr Þórisson (2) og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoruðu í sigrinum í ágúst 2022, þeir Daníel Hafsteinsson Elfar Árni Aðalsteinsson og Jakob Snær Árnason skoruðu mörkin í sigrinum í maí 2022 og í 3-0 sigrinum i ágúst 2021 þá skoruðu þeir Bjarni Aðalsteinsson, Jakob Snær og Hallgrímur Mar mörkin. Skagamenn fögnuðu síðast sigri á móti KA 14. júní 2020 þegar þeir unnu 3-1 sigur upp á Skaga. Þeir unnu hins vegar síðast fyrir norðan fyrir næstum því tuttugu árum eða 8. ágúst 2004. Í sigrinum 2020 þá skoruðu Stefán Teitur Þórðarson (2) og Tryggvi Hrafn Haraldsson mörk Skagamenn en í leiknum fyrir næstum því tuttugu árum þá skoruðu Ellert Jón Björnsson (2), Stefán Þór Þórðarson, Þorsteinn Gíslason og Gunnlaugur Jónsson mörkin. ÍA hefur nú leikið fimm leiki í röð í efstu deild fyrir norðan án þess að fagna sigri.
Besta deild karla ÍA KA Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Íslenski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Sjá meira