Tilkynnti sjálfan sig fyrir ölvunarakstur Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 16. janúar 2024 06:55 Lítið virðist hafa verið um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Vilhelm Maður var handtekinn í gær fyrir ölvunarakstur. Maðurinn hafði sjálfur tilkynnt sig til lögreglu eftir að hafa áttað sig á að hann gæti ekki haldið akstri áfram sökum ölvunar og vildi ekki stofna öðrum í hættu. Manninum var sleppt að lokinni blóðsýnatöku.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, sem nær yfir tímabilið milli klukkan fimm síðdegis í gær fram til klukkan fimm í morgun. Af henni að dæma virðast helstu verkefni lögreglu hafa snúið að akstri ökumanna undir áhrifum. Einn var til að mynda stöðvaður við umferðareftirlit og vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna, þar sem „meint fíkniefni“ fundust á honum. Hann var handtekinn en sleppt að lokinni blóðsýna- og skýrslutöku. Þá var annar stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda. Þriðji var stöðvaður við umferðareftirlit grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þeim var báðum sleppt að lokinni blóðsýnatöku. Þá segir í dagbók að tilkynnt hafi verið um minniháttar umferðarslys til lögreglustöðvar 1 á Hverfisgötu en engin slys hafi orðið á fólki. Sömuleiðis tilkynnt um stuld á leikjatölvu úr félagsmiðstöð grunnskólabarna í Reykjavík og er málið í rannsókn. Þá var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir þar sem maður var að bera mikið magn muna um miðja nótt. Lögregla náði tali af manninum, sem er nú til rannsóknar fyrir að hafa verið að flytja meint þýfi frá nærliggjandi fyrirtækjum.
Lögreglumál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira