Löng bílaröð til Grindavíkur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. nóvember 2023 11:09 Grindvíkingar við lokunarpóstinn á mótum Krýsuvíkurvegar og Suðurstrandarvegar. Vísir/EinarÁrna Töluvert löng bílaröð er nú á Krýsuvíkurvegi frá gatnamótunum við Suðurstrandarveg. Um er að ræða Grindvíkinga á leiðinni heim til sín til að frekari verðmætabjörgunar.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, ákvað í gær að breyta almannavarnarstigi vegna jarðhræringa við Grindavík, af neyðarstigi niður á hættustig frá og með klukkan ellefu í dag. Íbúar í Grindavík voru beðnir um að skrá sig á Island.is og sækja þar um heimild til að fara til bæjarins í dag. Slíkri heimild þarf að framvísa við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi. Það var ákveðið í kjölfar á nýju stöðumati Veðurstofu Íslands, þar sem fram kom meðal annars að líkur á skyndilegri gosopnun innan bæjarmarka Grindavíkur hafi farið minnkandi með hverjum degi og eru í dag taldar litlar. Árni sem reddar öllu er með gott pláss í sendibílnum.Vísir/EinarÁrna Land rís ennþá í Svartengi og kvika þar gæti flætt á ný undir í kvikuganginn undir Grindavík. Veðurstofan segir að fyrirboða um slíka atburðarrás yrði hægt að greina á skjálfta- og GPS mælum. Eins og sjá má á myndum sem Einar Árnason tökumaður fréttastofunnar tók er bílaröðin nokkuð löng. Hált er á vegum og ástæða til að fara að öllu með gát. Hált er á vegum og ástæða til að fara að öllu með gát.Vísir/EinarÁrna Íbúar í Grindavík hafa til klukkan fjögur síðdegis til að vera í bænum. Þá verður hann rýmdur. Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar þeyta sírenum og ljósmerkjum á ökutækjum og þýðir það tafarlaus rýming á svæðinu samkvæmt rýmingaráætlun. Rýmingarleiðir út bænum eru eftir Suðurstrandavegi eða Nesvegi. Að neðan má sjá tilhögunina af veg almannavarna: Íbúar í Grindavík beðnir um að skrá sig á www.island.is og fá þar heimild til þess að fara inn. Heimildin mun berast fljótt. Þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfa ekki að sækja um aftur. Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins og þeim sem aðstoða íbúa. Grindavíkurvegur er lokaður, en hægt er að aka Nesveg og Suðurstrandarveg. Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum, hámark 1 bíl á hvert heimili. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum. Gámabílar, gámar eða gámaflutningatæki, stórir sendibílar, kassabílar og kerrur eru ekki leyfð í íbúðahverfum vegna hættu á því að þau tefji eða hindri aðra umferð, með tilliti til öryggi fólks á svæðinu. Hvorki er virkt frárennsli né rennandi vatn þannig að ekki hægt að nota salerni í húsum í Grindavík. Stefnt er að koma upp salernum í bænum. Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum. Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum. Ekki er svigrúm til að íbúar flytji búslóðir sínar í burtu heldur að þeir geti tekið með sér helstu verðmæti og fatnað. Huga þarf að forgangsröðun þeirra hluta sem komast í bílinn sem notaður er. Þeim íbúum í skemmdum húsum sem þegar hafa fengið leyfi er heimilt að flytja búslóðir sínar burt. Mikilvægt er að hvert og eitt heimili skrái hjá sér þau verðmæti sem tekin eru úr húsunum og hafi samband við sitt tryggingafélags vegna þess. Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni. Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi. Íbúar eru hvattir til þess að ganga um og frá húsum sínum með þeim hætti að komið geti til rýminga með stuttum fyrirvara. Mikilvægt er að þau sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila á öllum stundum. Athygli er vakin á að á sama tíma og íbúar fá aðgang er unnið að öðrum verkefnum í bænum. Fjölmiðlum er heimilaður aðgangur.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Sjá meira