Ábyrgð Vesturlanda á fjöldamorðunum á Gasa Einar Ólafsson skrifar 21. nóvember 2023 18:00 Þegar þetta er skrifað hefur í 45 daga verið haldið upp stöðugum sprengjuárásum á afgirt þéttbýlissvæði þar sem búa á þriðju milljón íbúa, íbúar sem eiga enga möguleika á að flýja undan sprengjuregninu. Myndir sýna heilu íbúðarhverfin í rúst, fréttir berast af árásum á sjúkrahús og meira og minna hefur verið lokað fyrir rafmagn og vatn og aðrar vistir, þar á meðal lyf og önnur mikilvæg sjúkragögn. Að minnsta kosti 13 þúsund manns, nær eingöngu óbreyttir borgarar, þar af meira en fimm þúsund börn, hafa verið drepin og talið er fjöldi fólks sé grafinn undir rústum, dáið eða dauðadæmt. 1,7 milljón manns hafa þurft að flýja heimili sín og er þó varla neinn staður að flýja á. Sagan geymir dæmi um ógnarverk sem hið svokallaða „alþjóðasamfélag“ brást ekki við. Það hefur verið horft til þess með hryllingi og spurt: Af hverju var ekki brugðist við? Átakanlegast dæmið er sennilega fjöldamorðin í Rúanda árið 1994 þegar milli 500 og 800 þúsund manns voru drepnir á hundrað dögum. Bill Clinton, sem var forseti Bandaríkjanna árið 1994, kom í heimsókn til Rúanda árið 2012 og sagði við það tilefni að hann teldi það meðal sinna mestu mistaka sem forseti að bregðast ekki við þessum fjöldamorðum: „Ég held ekki að við hefðum getað stöðvað ofbeldið, en ég held við hefðum getað takmarkað það. Ég harma það“ (New York Times 4. 9. 2012). Þó er það svo að Bandaríkin höfðu engin sérstök ítök í Rúanda á þessum tíma. Þau höfðu vissulega verið að skipta sér af ýmsu í Afríku, svo sem í Sómalíu, en báru enga ábyrgð gagnvart atburðum í Rúanda umfram aðra, nema kannski sem voldugasta ríki heims með afskipti víða um heim. Af vestrænum ríkjum var það Frakkland sem bar mesta ábyrgð gagnvart Rúanda. Um 1990 hófst borgarastríð milli Tútsa og Hútúa sem höfðu ráðið ríkjum frá því landið hlaut sjálfstæði. Fjöldamorðin hófust í apríl 1994 eftir að forsetinn hafði verið myrtur. Frakkar höfðu þá um nokkurt skeið haft mikil samskipti við forsetann og stjórn hans og studdu her Rúanda í átökunum við frelsishreyfingu Tútsa. Af vestrænum ríkjum voru það sem sagt Frakkar en ekki Bandaríkjamenn sem höfðu helst möguleika á að hafa áhrif á gang mála og vissulega reyndu þeir það lítillega. Rétt er að taka fram að hvorki ríkisstjórn Rúanda né herinn stóðu beinlínis fyrir fjöldamorðunum en gerðu þó ekkert til að stöðva þau. Þáttur Frakka í þessum atburðum hefur verið rannsakaður, bæði af hálfu franskra stjórnvalda og stjórnvalda í Rúanda og niðurstaðan er að viðbrögð þeirra hafi verið miklu vægari en efni stóðu til. Þó er umdeilanlegt hvaða möguleika þeir höfðu til að breyta gangi mála svo um munaði. En samt líklega meiri en Bandaríkin. „Ég held ekki að við hefðum getað stöðvað ofbeldið, en ég held við hefðum getað takmarkað það. Ég harma það“, sagði Bill Clinton átján árum seinna. Vissulega er fjöldi myrtra á Gasa-svæðinu enn aðeins brot af þeim fjölda sem var myrtur í Rúanda 1994. Engu að síður er hér um fáheyrt ofbeldi gagnvart óbreyttum borgurum að ræða, yfir 13 þúsund manns drepnir á 45 dögum, nærri 300 á dag, þar af meira en fimm þúsund börn, auk annars sem áður er getið. Rétt er að nefna að þær morðárásir sem gerðar voru frá Gasa inn í Ísrael 7. október hafa almennt verið fordæmdar, en hversu ógnvænlegar sem þær voru og hversu mjög sem þær kölluðu á viðbrögð geta þær aldrei réttlætt viðbrögð af þessu tagi. Það þarf sérlega tilfinningabrenglað fólk til að halda því fram. En staða hins svokallaða alþjóðasamfélags er allt önnur hér en var í Rúanda árið 1994, einkum staða vestrænna ríkja með Bandaríkin í fararbroddi. Hér er árásaraðilinn, Ísrael, í einkar nánu sambandi við Bandaríkin. Milli Ísraels og NATO hefur verið mikil og góð samvinna um langt skeið og eitt fyrsta verk varnarmálaráðherra Ísraels eftir 7. október var að fara á fund kollega sinna í NATO. Ísrael telur sig til „hinna frjálslyndu lýðræðislegu Vesturlanda“ og hefur mikil samskipti við flest þeirra og þá ekki síst Evrópusambandið auk Bandaríkjanna. Fyrstu viðbrögð þessara vinaríkja Ísraels eftir hryðjuverkaárásina voru eðlilega fordæming á henni og þeim sem hana frömdu og samúð með Ísrael. En það var algerlega fyrirsjáanlegt eftir 75 ára átakasögu Ísraels og Palestínu að viðbrögð Ísraels færu langt fram úr hófi og það kom líka í ljós nánast samdægurs. Eigi að síður héldu „hin frjálslyndu lýðræðislegu Vesturlönd“ áfram einhliða fordæmingu á Hamas og meiri og minni stuðningi við Ísrael. Í 45 daga hefur Ísrael látið sprengjum rigna á hið þéttbýla og afgirta Gasa-svæði og enn hafa Bandaríkin og önnur vestræn ríki ekkert gert til að draga úr ofbeldinu, hvað þá binda endi á það. Vegna náinna samskipta við Ísrael bera Bandaríkin og önnur vestræn ríki, ekki síst aðildarríki NATO, þar á meðal Ísland, fulla ábyrgð á voðaverkunum á Gasa. Og af mjög náttúrlegum ástæðum er afar hæpið að núverandi forseti Bandaríkjanna muni heimsækja Palestínu eftir átján ár og segjast harma það að hafa ekki takmarkað ofbeldið. Höfundur er ljóðskáld sem hefur fylgst með málefnum Palestínu í hálfa öld. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar