Vöndum okkur Harpa Júlíusdóttir skrifar 22. nóvember 2023 07:00 Við erum líklega flest meðvituð um það að ofneysla veitir okkur ekki hamingju, og að í raun gengur hún á möguleika okkar og annarra til að vera hamingjusöm. Við eyðum fjármagni í vörur sem koma okkur ekki að neinu gagni, veita okkur enga hamingju og enda jafnvel beint í ruslinu - við kaupum til að henda. Framleiðsla vörunnar hefur þá í ferlinu gengið á auðlindir jarðar og í ótal tilfella einnig gengið á mannréttindi íbúa í hinu hnattræna suðri. Þessi neikvæðu tengsl neyslu og hamingju hafa sífellt komið betur í ljós í rannsóknum undanfarin ár. Við vitum að til þess að koma í veg fyrir ofnýtingu auðlinda jarðar og standa við loftslagsmarkmið þurfum við að færast úr línulegu hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfi. Fyrsta þrepið í módeli hringrásar er að draga úr neyslu og þar stöndum við á Vesturlöndum frammi fyrir alvöru áskorun. Síðustu ár höfum við fengið auka vinkil á þá áskorun, bæði framleiðndur, seljendur og neytendur, – þá ofneyslu áskorun sem blasir við okkur á hinum svokallaða Svarta föstudegi. Þar höfum við náð að skapa stemningu sem þrýstir á ofneyslu og óábyrga viðskiptahætti sem enginn græðir á. Hér þurfum við að breyta um átt, hugsa til framtíðar, hugsa til hringrásar. Fyrirmynd í fiski Um allan heim er litið til þess árangurs em við höfum náð þegar kemur að því að nýta auðlindina sem liggur í hafinu okkar við strendur Íslands. 100% fish er verkefni og markmið sem litið er upp til um allan heim og hefur Sjárvarklasinn lagt ómælda vinnu og hugvit í að tryggja þennan magnaða árangur. Í gegnum nýsköpun, samstarf og stór skref hefur okkur hér á landi tekist að ná allt að 90% nýtingu úr hverjum veiddum fiski. Auðlindir sem áður fóru í urðun eða var hreinlega hent aftur í sjóinn eru nú nýttar í ótal verðmætar hliðarafurðir og útflutningsvörur. Hérna er um að ræða fyrirmyndarverkefni sem hægt væri að heimfæra yfir á annan iðnað með sama tilgang að leiðarljósi. Tækifæri til að skapa Yfirfærsla okkar í hringrásarhagkerfið er ákall um nýsköpun og skapandi hugsun, bæði í framleiðslu og neyslu. Við hugsum þetta einfaldlega upp á nýtt og þar hafa aðildarfélög okkar í Festu verið í fararbroddi. Við setjum fiskúrgang í orkudrykki (Collab frá Ölgerðinni og Feel Iceland), framleiðum búðarkerrur úr plasti sem safnað er úr sjónum (Krónan), bjóðum ferðamönnum að synda í affalls vatni frá hitaveitu (Bláa lónið), seljum ónýta loftpúða úr bílum til verðlaunaðra hönnuða (Netpartar), keyrum framleiðsluferli með metan gasi sem kemur fram okkar eigin niðurbrjótanlegu vöruumbúðum (Te og kaffi), læknum þúsundir manna með fiskiroði sem áður fór í ruslið (Kerecis) og við drögum markvisst úr vöruúrvali á sama tíma og við aukum notagildi á þeim vörum sem við framleiðum (66° Norður). Það liggja einnig gífurleg tækifæri í endursölu og endurnotkun. Hugarfarsbreyting í kringum það að koma notuðum hlutum aftur inn í hringrás með því að gefa þá í gjafir, til dæmis nú um jólin, hefði í för með sér ótal tækifæri til að minnka sóun og jafnvel draga úr verðbólgu. Endursölumarkaður á fatnaði hefur á síðustu árum vaxið á ógnarhraða og mun það viðskiptamódel nú þjóna sem fyrirmynd fyrir aðra vöruflokka. Á árinu 2022 var virði á endursölu fatamarkaði í heiminum metið á 177 milljarða bandaríkjadala og er því spáð að árið 2027 verði það komið í 351 milljarða bandaríkjadala. Það liggja því tækifæri í því að framleiða vandaða vöru sem á líf eftir notkun fyrsta kaupanda. Þá hefur verið sýnt fram á það að74% af neytendumí heiminum nýti sér að einhverju leiti endursölumarkaði og þá einna helst þegar kemur að fatnaði og raftækjum. Vörumerki semhanna sínar vörur í þeim tilgangi að þær eigi sér annað líf inná endursölumarkaði, eru á sama tíma að byggja upp aukna langtíma tryggð við sína viðskiptavini. Við þurfum ekki að líta langt til að rifja upp dæmi um endursölumarkaði sem eiga góðan stað í hjörtum landsmanna og hafa skilað sínu. Góði hirðirinn er þar í fararbroddi, þar sem gömul húsgögn og aðrir heimilismunir fá nýtt líf. Fatabúðir Rauða krossins eru annað nærtækt dæmi. Vöndum okkur Ein af grunnstoðum hringrásarhagkerfsins er að framleiða eingöngu vörur sem skapa raunverulegt virði í sjálfbæru samfélagi. Við þurfum að hætta að framleiða vörur sem hafa ratað inn í hagkerfið okkar vegna ofneyslu. Þetta þýðir ekki að við hættum að framleiða vörur, segjum upp starfsfólki og lokum fyrirtækjum, alls ekki. Í hringrásarhagkerfinu er vandað til verks bæði í framleiðslu, þjónustu og neyslu. Samband framleiðanda og neytanda er vandað og traust. Samband okkar sem samfélags við náttúruna er vandað og auðgandi. Við vöndum okkur. Höfundur er verkefnastjóri hjá Festu - miðstöðvar um sjálfbærni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Loftslagsmál Sorphirða Ástin og lífið Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar