Haraldur Freyr: Ætli þetta séu ekki sanngjörn úrslit Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. ágúst 2023 19:41 Úr leik Keflavíkur frá því fyrr í sumar. Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur að hafa ekki hrósað sigri gegn Fram í dag en segir þó jafntefli líklega sanngjarna niðurstöðu.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur að hafa ekki hrósað sigri gegn Fram í dag en segir þó jafntefli líklega sanngjarna niðurstöðu. „Ætli þetta séu ekki sanngjörn úrslit, mér fannst við slakir í fyrri hálfleik, virkuðum hræddir, þorðum ekki að spila boltanum og sköpuðum ekki neitt. Seinni hálfleikurinn töluvert betri, aðeins opnari leikur og við fáum þarna ágætis færi og stöður til þess að búa til ennþá betri færi. En heilt yfir kannski sanngjarnt jafntefli.“ Stefan Ljubicic skoraði mark á 29. mínútu leiksins sem var dæmt af vegna brots á varnarmanni Fram. Stuðningsmenn, leikmenn og liðsstjórn Keflavíkur voru mjög ósátt við þá ákvörðun dómarans. „Það var mjög lítið fannst mér, hann dæmir á bakhrindingu en ég veit það ekki. Hann dæmdi allavega aukaspyrnu.“ Haraldur segist ánægður með frammistöðu sinna manna í seinni hálfleik og hrósar þeim fyrir að gera sitt besta við að sækja sigurinn, þó það hafi ekki gengið upp í dag. Þrátt fyrir erfiða stöðu liðsins hefur hann ekki enn gefið upp vonina að Keflavík haldi sér uppi í deild þeirra Bestu. „Mér fannst við, í seinni hálfleik allavega, komum hérna út og reyndum. Sýndum að við vildum vinna og þeir fá hrós fyrir það. En eitt stig gefur okkur bara rosa lítið í þessari baráttu sem við erum í, en þetta er ekki búið ennþá. Það er alltaf von meðan það er séns.“
Íslenski boltinn Besta deild karla Keflavík ÍF Fram Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Fleiri fréttir Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Sjá meira