Fjögurra leikja bann fyrir að bíta andstæðing Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. júní 2023 16:41 Alberto Sánchez Montilla hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir „grófa óíþróttamannslega framkomu“ í leik með Kormáki/Hvöt í 3. deild karla. Samsett Alberto Sánchez Montilla, leikmaður Kormáks/Hvatar hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að bíta andstæðing sinn í leik liðsins gegn Kára í 3. deildinni síðastliðinn sunnudag.
Atvikið átti sér stað þegar tæplega tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum þegar Alberto og Hilmar Halldórsson, leikmaður Kára, féllu báðir til jarðar inni í vítateig Kormáks/Hvatar. Í kjölfarið tók Alberto upp á því að bíta Hilmar í kálfann og þeim síðarnefnda var í kjölfarið ráðlagt af lækni að fara í stífkrampasprautu daginn eftir leik. Í reglubundnum úrskurði aganefndar KSÍ kemur fram að Alberto sé dæmdur í fjögurra leikja bann vegna brottvísunar, áður en tekið er fram að um grófa óíþróttamannslega framkomu hafi verið að ræða. Alberto er þó ekki sá eini úr umræddum leik sem dæmdur er í bann í úrskurði aganefndar KSÍ. Alls fóru sex rauð spjöld á loft í leiknum og þurfa allir þeir sem fengu að líta rauða spjaldið að taka út bann í einn til tvo leiki. Þar á meðal er Marinó Hilmar Ásgeirsson sem fékk að líta rauða spjaldið fyrir að rífa Alberto af samherja sínum þegar atvikið átti sér stað. Marinó þarf að taka út tveggja leikja bann.
Íslenski boltinn KSÍ Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira