Dagný og stöllur biðu afhroð gegn Manchester City Aron Guðmundsson skrifar 23. apríl 2023 21:45 Dagný Brynjarsdóttir í leik með West Ham United Visir/Getty Íslenska atvinnu- og landsliðskonan í knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, var í byrjunarliði West Ham United sem steinlá gegn Manchester City í efstu deild Englands í dag. Lokatölur 6-2 sigur Manchester City.
Það var fljótt ljóst í hvað stefndi því strax eftir sjö mínútur var Chloe Kelly búin að pota inn tveimur mörkum fyrir Manchester City. Emma Snerle náði hins vegar fljótlega að klóra í bakkann fyrir West Ham United með marki á 11. mínútu en því svaraði Manchester City með marki frá Lauru Coombs. Staðan orðin 3-1 fyrir Manchester City þegar flautað var til leiksloka. Svipuð staða var upp á teningnum í seinni hálfleik. Khadija Shaw bætti við fjórða marki Manchester City á 63. mínútu og tveimur mínútum síðar bætti Stephanie Houghton við fimmta marki þeirra bláklæddu. Lisa Evans náði að minnka muninn fyrir West Ham með marki á 73. mínútu en á 82. mínútu rak Mary Fowler, leikmaður Manchester City, síðasta naglann í kistu West Ham United með sjötta marki City. Lokatölur því 6-2 sigur Manchester City og kemur sigurinn liðinu upp í 2. sæti ensku deildarinnar þar sem það situr með þremur stigum minna en topplið Manchester United. West Ham United er sem stendur í 8. sæti deildarinnar með 17 stig.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Sjá meira