Þrjár líkamsárásir á borði lögreglu eftir gærkvöldið Vésteinn Örn Pétursson skrifar 10. apríl 2023 07:18 Lögreglan hafði nóg á sinni könnu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjú útköll vegna líkamsárása í gærkvöldi.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Fyrsta útkallið barst skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöldi, vegna árásar í miðborg Reykjavíkur. Sá sem fyrir árásinni varð taldi sig nefbrotinn eftir árásina, en engar frekari upplýsingar um árásina koma fram í færslu lögreglu. Annað útkall barst þá í Árbæ laust fyrir klukkan níu, þá vegna líkamsárásar og hótana. Að öðru leyti er framvinda málsins ekki tíunduð í skeyti lögreglu til fjölmiðla. Þriðja árásin var tilkynnt upp úr klukkan ellefu. Líkt og sú fyrsta er hún sögð hafa átt sér stað í miðbænum. Nóg af verkefnum Fjórir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Þá var einn til viðbótar sektaður fyrir akstur án ökuréttinda. Klukkan hálf sjö í gærkvöldi barst lögreglu ósk um aðstoð vegna dauðrar rottu í garði í Laugardal. Þeim sem bar óskina upp var leiðbeint um viðeigandi ráðstöfun rottunnar. Skömmu fyrir klukkan ellefu óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu í Breiðholti, vegna farþega sem neitaði að greiða fyrir farið. Viðkomandi verður kærður fyrir fjársvik.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira