Sló til lögreglu sem reyndi að skerast í leikinn Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2023 08:29 Lögregla hafði í nægu að snúast. Myndin var tekin laust eftir klukkan þrjú í nótt, í miðborg Reykjavíkur. Vísir/KTD Lögregla stöðvaði átök tveggja manna í miðborginni í gær. Annar þeirra var ósáttur með afskiptin og sló til lögreglumanns á vettvangi. Hann fékk að gista í fangageymslu í nótt.
Tilkynnt var um þjófnað þar sem greiðslukorti var meðal annars stolið. Lögregla grunar ákveðinn einstakling en sá reyndi að nota greiðslukortið í verslun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjallað er um verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Lögreglu barst tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað í gær og hafði afskipti af einum sem átti í erfiðleikum með „mannleg samskipti.“ Enginn var handtekinn en einum var vísað burt. Þá var manni vísað út úr verslun að beiðni starfsmanns verslunarinnar en sá taldi sig ekki þurfa að gefa upp nafn og kennitölu þegar lögregla mætti á vettvang. Hann var því færður inn í lögreglubifreið en virtist hafa áttað sig og gaf þá undan, að því er fram kemur í dagbókinni. Lögreglustöð 1, sem sér um Austurbæ, Vesturbæ, Miðborg og Seltjarnarnes, sá um útkallið. Eins og oftlega um helgar voru nokkrir ökumenn stöðvaðir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Lögreglumenn á Stöð 4, sem sjá um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, stöðvuðu för ökumanns sem reyndist hafa neytt áfengis, en mældist rétt undir kærumörkum. Lögregla skutlaði honum síðasta spölinn. Þá var tilkynnt um tvær líkamsárásir á stöð 3, Kópavogur og Breiðholt, og er önnur þeirra flokkuð sem heimilisofbeldi.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira