Fagnar því að „ógeðfelld og ljót krafa“ falli frá Fanndís Birna Logadóttir skrifar 5. febrúar 2023 14:01 Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Fósturvísum verður ekki eytt sjálfkrafa við skilnað eða andlát ef að frumvarp heilbrigðisráðherra nær fram að ganga. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hafði lagt fram eigið frumvarp, fagnar málinu og segir þetta ógeðfellt ákvæði. Hún vill þó ganga lengra og telur tilefni til að skoða rýmri heimild fyrir því að gefa fósturvísa.
Um er að ræða frumvarp um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Frumvarpið var lagt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir helgi og felur í sér breytingu á ákvæðum laganna sem kveða á um eyðingu kynfrumna og fósturvísa. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fagnar frumvarpinu en hún lagði fram sitt eigið frumvarp á þar síðasta ári. „Það er í núgildandi lögum, að mér finnst, mjög ógeðfelld og ljót krafa sem er um að þrátt fyrir skýran vilja fólks þá er lögð mjög skýr og bláköld krafa um að ef að fólk slítur samvistum, eða skilur, eða annar aðilinn andast þá má með engum undantekningum nýta viðkomandi til dæmis fósturvísa sem að fólk hefur lagt til hliðar í svona sinni vegferð við að reyna að eignast barn,“ segir Hildur. Með áformuðum lögunum verður breyting þar á en Hildur vildi ganga ögn lengra í sínu frumvarpi og sleppa því að skilgreina sérstaklega sambúðarform. „Þannig að það eina sem að skiptir máli er upplýst samþykki, skriflegt og vottað að sjálfsögðu, fólks á milli sem vill eignast börn. Það á auðvitað ekki að skipta máli ef það síðan býr ekki saman eða eitthvað slíkt, en frumvarp ráðherrans tekur ekki á því heldur eingöngu þessum efnisatriðum um andlát eða skilnað,“ segir hún. Þá vildi hún auknar heimildir til að geyma og gefa fósturvísa. „Það má gefa sæði og það má gefa egg en það má til dæmis ekki gefa tilbúin fósturvísi. Fyrir fólk sem er í mjög erfiðri stöðu þá getur tilbúinn fósturvísir verið algjört gull og ofboðslega sorglegt fyrir þá sem eru í þessari stöðu að mega ekki þiggja slíkt. Þannig ég vil til dæmis breyta því,“ segir Hildur og bætir við að einnig megi endurskoða kostnaðarliðinn. Í grunninn séu þau þó sammála um að tryggja þurfi lágmarks og sjálfsögð réttindi. „Ég hef ekki fundið neitt annað en bara virkilega jákvæð viðbrögð. Þannig að núna í framhaldinu, fyrst að frumvarp ráðherra er komið í samráðsgátt, þá munum við skoða kannski næstu skref,“ segir Hildur um framhaldið. „Mitt frumvarp er nú þegar í velferðarnefnd, það er búið að taka við umsögnum og bíður nú gestakomu, að mér skilst. Þannig við skulum bara sjá í framhaldinu hvernig við vinnum þetta saman eða hvað við gerum, en við í stjórnarmeirihlutanum finnum eitthvað fallegt út úr því held ég,“ segir hún enn fremur.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Frjósemi Heilbrigðismál Tengdar fréttir Lög um tæknifrjóvganir mega ekki gera verkefnið erfiðara Í síðustu viku mælti ég fyrir frumvarpi mínu um aukið frelsi í löggjöf um tæknifrjóvganir. Ég lagði málið fyrst fram á síðasta þingi en það komst því miður ekki á dagskrá þá heldur nú í byrjun nýs þings eftir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað að setja málið fremst í röð þingmannamála. 26. september 2022 07:00 Dýrkeypt að takast á við ófrjósemi Um 70 ungir einstaklingar greinast árlega með krabbamein á Íslandi, öll standa þau frammi fyrir því að þurfa mögulega að glíma við ófrjósemi í framhaldinu. Á síðastliðnum dögum og vikum hafa tæknifrjóvgunarmál víða borið á góma í samfélaginu. 15. júní 2022 19:16 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan varar foreldra við „Island Surge VPN“ „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Sjá meira
Lög um tæknifrjóvganir mega ekki gera verkefnið erfiðara Í síðustu viku mælti ég fyrir frumvarpi mínu um aukið frelsi í löggjöf um tæknifrjóvganir. Ég lagði málið fyrst fram á síðasta þingi en það komst því miður ekki á dagskrá þá heldur nú í byrjun nýs þings eftir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað að setja málið fremst í röð þingmannamála. 26. september 2022 07:00
Dýrkeypt að takast á við ófrjósemi Um 70 ungir einstaklingar greinast árlega með krabbamein á Íslandi, öll standa þau frammi fyrir því að þurfa mögulega að glíma við ófrjósemi í framhaldinu. Á síðastliðnum dögum og vikum hafa tæknifrjóvgunarmál víða borið á góma í samfélaginu. 15. júní 2022 19:16