Tilkynnt um hópárás en enginn fundist Árni Sæberg skrifar 16. ágúst 2022 06:23 Nokkur erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt. Vísir/Vilhelm Í gær var tilkynnt um hópárás í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Tilkynnandi kvaðst hafa séð þrjá til fjóra stráka ráðast á einn með höggum og spörkum. Enginn var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði og enginn hefur gefið sig fram sem brotaþoli.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu fyrir gærkvöld og nóttina. Hún er nokkuð þéttskrifuð miðað við mánudagskvöld. Í umdæmi lögreglustöðvar tvö var tilkynnt um tvo menn að slást en ekkert liggur fyrir um hvor þeirra átti upptökin og engar kröfur hafa verið gerðar. Í sama umdæmi var tilkynnt um krakka að sprengja flugelda við skóla. Þeir tóku til fótanna þegar lögregla koma á vettvang. Í umdæmi lögreglustöðvar eitt var tilkynnt um skemmdarverk í skóla. Þar hafði rúða verið brotin en ekki liggur fyrir hvort um tilraun til innbrots hafi verið að ræða. Nokkuð var um umferðaróhöpp í gær. Tilkynnt var um árekstur reiðhjóls og bifreiðar sem olli minniháttar meiðslum og umferðaróhapp þar sem annar ökumanna stakk af frá vettvangi. Þar urðu engin meiðsli. Tveir ökumenn voru stöðvaðir sem reyndust ekki með ökuréttindi, annar hafði tapað þeim og hinn aldrei öðlast. Þá voru tveir handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.
Lögreglumál Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Sjá meira