Ísland styður við móttöku flóttamanna í Moldóvu Heimsljós 6. apríl 2022 09:03 UNHCR Íslensk stjórnvöld tilkynntu í gær um 50 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til að bregðast við álagi á innviði í Moldóvu vegna komu flóttamanna frá Úkraínu. María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, tilkynnti um framlagið á áheitaráðstefnu til stuðnings Moldóvu. Utanríkisráðherra Þýskalands stóð fyrir ráðstefnunni í samstarfi við kollega sína frá Frakklandi og Rúmeníu, auk forsætisráðuneytis Moldóvu. Þegar hafa rúmlega 400 þúsund manns flúið yfir landamæri Úkraínu til Moldóvu frá því að innrás Rússlands hófst 24. febrúar síðastliðinn og fjórðungur þeirra fengið vernd í landinu. Aðrir halda áfram til annarra ríkja. Móldóva er fátækasta ríki Evrópu og þar búa um 2,6 milljónir. Því er mikilvægt að Ísland og samstarfsríki komi til móts við það mikla álag sem þar hefur skapast. Fulltrúar um fjörtíu ríkja tóku þátt í ráðstefnunni og söfnuðust áheit að því sem nemur 695 milljónum evra. Framlag Íslands er hluti af því framlagi sem forsætisráðherra tilkynnti um í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins 24. mars síðastliðinn. Íslensk stjórnvöld hafa nú veitt rúmlega hálfum milljarði króna til alþjóðlegs hjálparstarfs vegna stríðsins í Úkraínu. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Flóttamenn Moldóva Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent
María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, tilkynnti um framlagið á áheitaráðstefnu til stuðnings Moldóvu. Utanríkisráðherra Þýskalands stóð fyrir ráðstefnunni í samstarfi við kollega sína frá Frakklandi og Rúmeníu, auk forsætisráðuneytis Moldóvu. Þegar hafa rúmlega 400 þúsund manns flúið yfir landamæri Úkraínu til Moldóvu frá því að innrás Rússlands hófst 24. febrúar síðastliðinn og fjórðungur þeirra fengið vernd í landinu. Aðrir halda áfram til annarra ríkja. Móldóva er fátækasta ríki Evrópu og þar búa um 2,6 milljónir. Því er mikilvægt að Ísland og samstarfsríki komi til móts við það mikla álag sem þar hefur skapast. Fulltrúar um fjörtíu ríkja tóku þátt í ráðstefnunni og söfnuðust áheit að því sem nemur 695 milljónum evra. Framlag Íslands er hluti af því framlagi sem forsætisráðherra tilkynnti um í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins 24. mars síðastliðinn. Íslensk stjórnvöld hafa nú veitt rúmlega hálfum milljarði króna til alþjóðlegs hjálparstarfs vegna stríðsins í Úkraínu. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Flóttamenn Moldóva Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent