Xavi vill þrjá varnarmenn Chelsea Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. apríl 2022 19:30 Þessir þrír eru allir á óskalista Barcelona. Visionhaus/Getty Images Spænska knattspyrnufélagið Barcelona stefnir á að sækja þrjá varnarmenn Chelsea í sumar.
Mikil óvissa ríkir um framtíð nokkurra leikmanna Chelsea. Þá sérstaklega þeirra sem eru að renna út á samning en sem stendur má enska félagið ekki endursemja við leikmennina vegna viðskiptaþvinganna sem settar voru á Roman Abramovich, eiganda félagsins, eftir innrás Rússa í Úkraínu. Abramovich er frá Rússlandi og talinn hafa grætt á vinskap sínum við forseta landsins í gegnum tíðina. Barcelona virðist vera að ná vopnum sínum undir stjórn Xavi. Svo virðist sem þjálfarinn ætli að nýta sér stöðuna hjá Chelsea og sækja tvö varnarmenn félagsins á frjálsri sölu. Um er að ræða hinn 29 ára gamla Antonio Rüdiger, er hann einn eftirsóttasti varnarmaður heims um þessar mundir. Hinn 25 ára gamli Andreas Christensen gæti einnig verið á leið til Katalóníu ef marka má frétt The Telegraph um málið. Þá er hinn 32 ára gamli Spánverji Cesar Azpilicueta á óskalista Xavi en samningur hans rennur út sumarið 2023. Ef hann er að hugsa sér til hreyfings gæti Barcelona fengið hann nokkuð ódýrt þar sem Chelsea vill ekki missa hann frítt ári síðar. Barcelona er nokkuð óvænt komið í baráttuna um 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, eftir hörmulega byrjun á tímabilinu. Chelsea er á sama tíma í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og á litla sem enga möguleika á að ná toppliðum Manchester City og Liverpool.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Sjá meira