Derby fær auka mánuð í frest til að finna nýja eigendur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. janúar 2022 22:30 Wayne Rooney er þjálfari Derby. John Walton/PA Images via Getty Images Enska knattspyrnufélagið Derby County hefur fengið einn mánuð aukalega í frest til þess að finna nýjan eiganda og leysa þau fjárhagslegu vandamál sem félagið er í.
Frestur félagsins átti að renna út þann 1. febrúar næstkomandi, en hefur nú verið framlengur fram í byrjun mars. Derby fór í greiðslustöðvun í haust og í kjölfarið á því var 21 stig dregið af liðinu. Skiptastjórnendur Derby hafa átt í viðræðum við nokkra aðila um kaup á félaginu að undanförnu, en þær viðræður hafa gengið brösulega þar sem tvö félög hafa lagt fram skaðabótakröfur á hendur Derby. Middlesbrough telur sig hafa orðið fyrir tjóni árið 2019 þegar Derby fór upp fyrir liðið í ensku 1. deildinni og tryggði sér umspilssæti og þá telur Wycombe Wanderers að stigin sem voru dregin af Derby á þessu tímabili hafi átt að vera dregin af þeim á síðasta tímabili. Hefðu stigin verið dregin af Derby á síðasta tímabili hefði félagið fallið úr 1. deildinni í stað Wycombe. Eins og staðan er núna er Derby í næst neðsta sæti ensku 1. deildarinnar með 14 stig eftir 27 leiki. Liðið er aðeins átta stigum frá öruggu sæti og það verður að teljast ótrúlegt þrekvirki ef liðið nær að halda sér í deildinni þrátt fyrir að hafa misst 21 stig í haust.
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Sjá meira