Við það að fá taugaáfall í fangelsinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. september 2021 16:02 Benjamin Mendy var í byrjunarliði Manchester City gegn Tottenham Hotspur í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. James Williamson/Getty Images Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, er við það að fá taugaáfall í HMP Altcourse-fangelsinu. Þar bíður hann dóms eftir að hafa verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota.
Mendy var nýverið ákærður fyrir fjórar nauðganir og eitt kynferðisbrot. Man City ákvað í kjölfarið að senda hann í leyfi meðan beðið yrði eftir úrskurði dómara í málinu. Það kom þó fram að Mendy hafi spilað með liðinu eftir að hafa verið handtekinn þar sem hann hafði verið ásakaður um nauðgun. Samkvæmt frétt The Mirror virtist Mendy halda að hann gæti farið heim eftir að hafa verið færður fyrir dómara þar sem ákærurnar voru lesnar upp nú á dögunum. Þess í stað var farið með hann í HMP Altcourse-fangelsið í Liverpool þar sem hann bíður nú dóms. Samkvæmt götublaðinu The Sun taldi Mendy að hann yrði sendur í VIP-álmu fangelsisins en brá heldur betur í brún þegar hann komst að því að fangelsið hefði enga slíka álmu. Honum hafði misheyrst en íhugað var að senda hinn 27 ára gamla Frakka í VP-álmuna en þar dúsa viðkvæmir eða varnarlausir fangar (e. vulnerable prisoners). Mendy er því sem stendur meðal almennra fanga í fangelsinu og er á barmi taugaáfalls. Mendy leikur í stöðu vinstri bakvarðar og var keyptur til Manchester City á 52 milljónir punda sumarið 2017. Félagið segist ekki getað tjáð sig um málið þar sem um lögreglumál sé að ræða.
Fótbolti Enski boltinn Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Hélt áfram að spila þrátt fyrir ítrekaðar handtökur vegna kynferðisbrota Frakkinn Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City á Englandi, er í varðhaldi og var neitað um lausn gegn tryggingagjaldi vegna brota á skilorði. Hann á fjórar nauðgunarkærur yfir höfði sér auk einnar kæru um kynferðislegt ofbeldi. 28. ágúst 2021 10:07 Mendy ákærður fyrir fjórar nauðganir Benjamin Mendy, varnarmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur verið ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot. 26. ágúst 2021 16:00 Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjá meira
Hélt áfram að spila þrátt fyrir ítrekaðar handtökur vegna kynferðisbrota Frakkinn Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City á Englandi, er í varðhaldi og var neitað um lausn gegn tryggingagjaldi vegna brota á skilorði. Hann á fjórar nauðgunarkærur yfir höfði sér auk einnar kæru um kynferðislegt ofbeldi. 28. ágúst 2021 10:07
Mendy ákærður fyrir fjórar nauðganir Benjamin Mendy, varnarmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur verið ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot. 26. ágúst 2021 16:00