Mikið svekkelsi í Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2021 14:01 Keflavíkurkonur fagna en dómarinn er búinn að dæma markið af. S2 Sport Pepsi Max mörkin ræddu byrjun Keflavíkurkvenna á Íslandsmótinu en hlutirnir hafa ekki alveg fallið með liðinu í upphafi sumars. Tvö mörk voru dæmd af Keflavíkurliðinu í gær og Pepsi Max mörkin skoðuðu þá dóma.
Nýliðar Keflavíkur hafa enn ekki náð að vinna leik í Pepsi Max deild kvenna í sumar og liðið fékk á sig sigurmark rétt fyrir leikslok á móti ÍBV í gær. Það var hins vegar ekki það eina sem féll ekki ekki með Keflavíkurkonum. „Mikið svekkelsi í Keflavík. Það veit ég,“ sagði Helena Ólafsdóttir umsjónarkona Pepsi Max markanna þegar hún hóf umfjöllunina um Keflavíkurliðið. ÍBV vann 2-1 sigur í Keflavík og Keflavíkurkonur sitja í fallsæti með núll sigra og þrjú stig í fimm leikjum. Klippa: Pepsi Max Mörkin: Mörk dæmt af Keflavíkurliðinu „Maður finnur til með þeim eftir þessa byrjun. Fín frammistaða en alltof mikið af jafnteflum sem gefa ekki mikið þegar talið er upp úr kössunum,“ sagði Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur í Pepsi Max mörkunum. „Svo að tapa svona jöfnum leik á 89. mínútu og skora tvö mörk sem við þurfum að skoða betur hvort áttu að standa eða ekki,“ sagði Mist. Stelpurnar í Pepsi Max mörkunum voru sammála um það að Aerial Chavarin hafi verið réttstæð í marki sem var dæmt af henni. Þær skoðuðu líka markið sem Keflavíkurliðið fékk ekki dæmt gilt í lokið. Hér fyrir ofan má sjá umfjöllunina um mörk sem voru dæmt af Keflavík á móti ÍBV í gær.
Pepsi Max-deild kvenna Pepsi Max-mörkin Keflavík ÍF ÍBV Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira