Öruggara flutningskerfi er grunnforsenda hagkvæmrar grænnar endurreisnar Gnýr Guðmundsson skrifar 7. apríl 2021 11:00 Það er okkur hjá Landsneti alltaf fagnaðarefni þegar jafn mikilvægur málaflokkur og orkumál eru til umræðu en teljum þó mikilvægt að réttar upplýsingar séu í umræðunni. Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitunnar sagði nýlega í grein að afhendingaröryggi á Íslandi sé með því besta sem þekkist í heiminum en skautar fram hjá þeirri staðreynd að afhendingarörygginu er mjög misskipt milli landshluta og notendahópa. Stórnotendur búa nefnilega við tiltölulega gott afhendingaröryggi á meðan almennir notendur víða um land búa við annan veruleika. Viðmið um afhendingaröryggi í kerfi Landsnets eru meðal annars sett fram í mælikvarða sem kallast straumleysismínútur, sem mælir hlutfall samanlagðrar orkuskerðingar við truflun og heildarorkusölu. Markmið er að straumleysismínútur séu ekki fleiri en 50 á ári. Straumleysismínútur fyrir stórnotendur voru að jafnaði 22 á ári síðastliðin fimm ár en yfir 80 fyrir almenna notendur á sama tíma. Árið 2019 var um margt sérstakt en þá voru straumleysismínútur almennra notenda 300 og margfalt fleiri ef aðeins er horft á einstaka landshluta s.s. Norðausturland. Frá 2013 hefur það aðeins einu sinni gerst að straumleysismínútur séu fleiri hjá stórnotendum en hjá almennum notendum. Þessi staða er líkleg til að versna, því aukið álag, sem nú þegar er mikið, dregur enn frekar úr sveigjanleika kerfisins til að bregðast við truflunum. Það þarf því augljóslega að styrkja flutningskerfið ef koma á í veg fyrir tíðari og alvarlegri rafmagnsleysi sem eru samfélaginu feykilega kostnaðarsöm. Varaafl í álverum Hugmyndin um að hægt sé að nýta álverin sem “varaafl” er alls ekki ný í umræðunni. Okkur finnst þó rétt að benda á að þörfin fyrir varaafl er að langstærstum hluta á byggðalínusvæðinu og í svæðisbundnu flutningskerfunum og stafar ekki af skorti á uppsettu afli í virkjunum heldur af ástandi flutnings- og dreifikerfa raforku á landsbyggðinni. Það að draga úr framleiðslu álvers að hluta mun því ekki leysa þau vandamál. Eins þarf að hafa í huga að orkan verður ekki til í álverunum og ef að stórfelldar náttúruhamfarir verða t.d. til þess að ekki er hægt að flytja orku til höfuðborgarsvæðisins frá Þjórsár- og Tungnársvæðinu verður ekki hægt að sækja neina orku til álveranna. Því er æskilegt að fyrir hendi sé byggðalína sem er þess megnug að fæða svæðið frá öðrum landshlutum. Sammála um nauðsyn uppbyggingar Við erum sennilega flest sammála um nauðsyn uppbyggingar. Þó segir Bjarni að við þurfum ekki, frekar en við viljum, að leggja í tugmilljarða fjárfestingar í flutningskerfinu en nefnir líka að mikilvægt sé að Landsnet nýti það fé sem það hefur til ráðstöfunar til þess að tryggja afhendingaröryggi til almennings. Þessu erum við sammála, en eitt af meginmarkmiðum framkvæmda sem kynntar eru í kerfisáætlun Landsnets er einmitt að tryggja afhendingaröryggi til næstu ára og áratuga ásamt því að auka afhendingargetu kerfisins svo að meðal annars sé hægt að taka orkuskiptin alla leið. Að okkar mati er ný kynslóð byggðalínu lykilatriði þess að þetta sé mögulegt, en í greininni er lýst yfir andstöðu við því að endurnýja byggðalínuna frá Hvalfirði að Akureyri og það sagt óþarft með öllu til skemmri tíma litið. Umræddur kafli byggðalínunnar er að jafnaði 45 ára en líftími raflína er 50 ár og er hún því gömul, veikbyggð og uppfyllir hvorki þær kröfur sem gerðar eru til hennar í dag, né styður við framtíðarþróun raforkumála á landinu og því mikilvægt að hefjast handa við endurnýjun hennar. Því eru stjórnvöld sammála og er þess getið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að nýta betur núverandi virkjanir með uppbyggingu flutningskerfisins og við sama tón er kveðið í Orkustefnu Íslands. Betri samtenging landshluta með nýrri kynslóð byggðalínu eru grunnforsenda slíkrar bættrar nýtingar virkjana, sem á sama tíma mun skapa verðmæti og störf, styðja við orkuskipti og atvinnuuppbyggingu og auka afhendingaröryggi á landsbyggðinni til mikilla muna. Sagan og framtíðarsýnin Í greininni er einnig í grundvallatriðum rangt farið með fyrirætlanir Landsnets og sögu raforkukerfisins. Þar kemur orðrétt fram : „Landsnet virðist standa í þeirri trú að fyrirtækinu beri að tryggja það fyrir fram að tengja megi nýjar virkjanir og nýja stórnotendur við flutningskerfið hvenær sem er og hvar sem er.“ Því er til að svara að þau verkefni sem eru á 10 ára áætlun Landsnets snúa að mestu að endurnýjun byggðalínunnar, en hún var á sínum tíma byggð án þess að fyrir lægju samningar við stórnotendur eða virkjanir. Með þessum fyrirætlunum er heldur ekki sleginn nýr tónn. Það er af og frá að tengja uppbyggingu flutningskerfisins við tilkomu stórnotenda eða virkjana. Flestir stórnotendur hafa fundið sér stað fyrir starfsemi sína þar sem flutningskerfið leyfði. Aflþynnuverksmiðja TDK á Krossanesi og öll gagnaverin sem starfa hér á landi hafa tengst kerfinu án þess að til kæmu nýjar flutningslínur og hið sama á við um margar virkjanir. Hellisheiðavirkjun, sem er önnur stærsta virkjun landsins, var til að mynda árið 2006 tengd inn á Búrfellslínu 2, línu sem byggð var árið 1973. Vatnsfellsvirkjun, Búðarhálsvirkjun og Búrfellsvirkjun 2 voru einnig tengdar inn á línur sem þegar voru til staðar frá virkjanasvæðinu og til höfuðborgarsvæðisins og eins var Blönduvirkjun tengd inn á byggðalínuna á milli Varmahlíðar og Blönduóss. Í lok greinarinnar fer Bjarni svo inn á það að honum sé ekki kunnugt um áform um stórar virkjanir á næstu árum, né heldur um stórkaupendur á rafmagni. Ekki sé að hans mati rétti tíminn til að styrkja flutningskerfið því við vitum ekki hvort fleiri stórnotendur á raforku muni koma fram eða hvort fleiri virkjanir verði að raunveruleika. Það vitum við ekki heldur, en teljum okkur þó vita án nokkurs vafa að án uppbyggingar flutningskerfis getur það ekki gerst. Hvort sem markmiðið er hagkvæm græn endurreisn, kolefnalaust Ísland eða annars konar uppbygging. Höfundur er yfirmaður greininga og áætlana í raforkukerfinu hjá Landsneti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar