Einn greindist utan sóttkvíar Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2021 10:43 14.104 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 23.075 til viðbótar. Vísir/Vilhelm Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta kórónuveirusmitið sem greinist hér á landi utan sóttkvíar síðan 8. mars.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 22 eru nú í einangrun, en í gær voru þeir 31. 22 eru nú í sóttkví, en voru tuttugu í gær. 989 eru nú í skimunarsóttkví. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að rakning sé í fullum gangi og sömuleiðis raðgreining varðandi þennan einstakling sem greindist smitaður utan sóttkvíar í gær. „Tilfellið sem greindist í gær sýnir að veiran er ekki horfin úr íslensku samfélagi,“ segir Þórólfur. Einn greindist með kórónuveiruna á landamærunum, í tilviki viðkomandi er mótefnamælingar beðið. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 2,5, en var 2,2 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 6,5, en var 6,3 í gær. 14.104 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 23.075 til viðbótar. 6.091 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins. Alls voru tekin 495 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 346 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Fleiri fréttir Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Sjá meira