Bíða enn svara frá UEFA vegna Gylfa, Rúnars, Jóhanns Berg og Jóns Daða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2021 13:29 Gylfi Þór Sigurðsson á enn eftir að fá grænt ljós fyrir Þýskalandsleikinn. VÍSIR/GETTY Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, veit ekki enn hvort að hann geti notað leikmennina sem spila hjá enskum liðum.
Það eru aðeins átta dagar í fyrsta leik á móti Þjóðverjum en KSÍ bíður enn svara frá Knattspyrnusambandi Evrópu. Það kom fram á blaðamannafundi Arnars og KSÍ í dag að Ísland væri ekki enn búið að fá lokasvör varðandi þessa leikmenn sem eru að koma frá Englandi til móts við íslenska landsliðið. Gylfi Þór Sigurðsson, Rúnar Alex Rúnarsson og Jóhann Berg Guðmundsson spila með liðum í ensku úrvalsdeildinni en Jón Daði Böðvarsson er að spila í ensku b-deildinni. „Það er enn spurningarmerki með Þýskaland, hvort leikmennirnir okkar sem spila á Bretlandseyjum fái að koma inn til Þýskalands. Við erum að bíða eftir svörum frá UEFA og þýskum yfirvöldum. Það er stærsti óvissuþátturinn í þessu öllu saman,“ sagði Arnar á blaðamannafundinum í dag. Arnar segir að hann gæti þurft að kalla á leikmenn úr 21 árs landsliðinu fáist ekki þetta leyfi.„Ef Þýskaland opnar ekki fyrir leikmenn okkar þá köllum við leikmenn úr U21 hópnum. Við viljum að strákarnir fái reynsluna af því að spila á lokamóti. A-landslið karla er samt sem áður efst í píramídanum,“ sagði Arnar.
UEFA HM 2022 í Katar KSÍ Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira