Keflavík jafnar Val á toppi deildarinnar eftir nauman sigur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2021 17:46 Keflavík vann nauman en mikilvægan sigur í dag. Liðið er nú jafnt Val á toppi Dominos-deildar kvenna. Vísir/Hulda Margrét Keflavík vann einkar nauman sigur á Snæfelli í Dominos-deild kvenna í dag, lokatölur 85-80 í mjög jöfnum leik. Fyrir fram var reiknað með öruggum sigri Keflavíkur enda liðið að berjast á toppi deildarinnar á meðan Snæfell er á hinum endanum og hafði aðeins unnið tvo leiki af tólf til þessa. Það var ekki að sjá í fyrsta fjórðung leiksins þar sem gestirnir frá Stykkishólmi áttu að öllum líkindum sinn besta leikhluta á tímabilinu. Liðið skoraði 38 stig gegn 21 hjá Keflavík og var með 17 stiga forystu. Leikar jöfnuðust aðeins í öðrum fjórðung en þá skoruðu gestirnir aðeins 14 stig. Staðan 52-47 gestunum í vil er flautað var til hálfleiks. Síðari hálfleikur var mun jafnari en eftir jafnan þriðja leikhluta þó náðu Keflvíkingar að kreista út sigur þökk sé góðu áhlaupi í upphafi fjórða leikhluta. Lokatölur 85-80 í hörkuleik. Daniela Wallen Morillo var frábær í liði Keflavíkur en hún var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu. Morilla skoraði 28 stig, tók 22 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Þar á eftir kom Anna Ingunn Svansdóttir með 27 stig og níu fráköst. Hjá Snæfelli skoraði Anna Soffía Lárusdóttir 23 stig ásamt því að taka 12 fráköst. Keflavík er nú með 22 stig á toppi deildarinnar, líkt og Valur. Snæfell er hins vegar í 7. sæti með aðeins fjögur stig.
Fyrir fram var reiknað með öruggum sigri Keflavíkur enda liðið að berjast á toppi deildarinnar á meðan Snæfell er á hinum endanum og hafði aðeins unnið tvo leiki af tólf til þessa. Það var ekki að sjá í fyrsta fjórðung leiksins þar sem gestirnir frá Stykkishólmi áttu að öllum líkindum sinn besta leikhluta á tímabilinu. Liðið skoraði 38 stig gegn 21 hjá Keflavík og var með 17 stiga forystu. Leikar jöfnuðust aðeins í öðrum fjórðung en þá skoruðu gestirnir aðeins 14 stig. Staðan 52-47 gestunum í vil er flautað var til hálfleiks. Síðari hálfleikur var mun jafnari en eftir jafnan þriðja leikhluta þó náðu Keflvíkingar að kreista út sigur þökk sé góðu áhlaupi í upphafi fjórða leikhluta. Lokatölur 85-80 í hörkuleik. Daniela Wallen Morillo var frábær í liði Keflavíkur en hún var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu. Morilla skoraði 28 stig, tók 22 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Þar á eftir kom Anna Ingunn Svansdóttir með 27 stig og níu fráköst. Hjá Snæfelli skoraði Anna Soffía Lárusdóttir 23 stig ásamt því að taka 12 fráköst. Keflavík er nú með 22 stig á toppi deildarinnar, líkt og Valur. Snæfell er hins vegar í 7. sæti með aðeins fjögur stig. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Keflavík ÍF Snæfell Dominos-deild kvenna Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Sjá meira