Betur undirbúinn en þegar símtalið endasleppa barst 2018 Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2021 15:03 Ásmundur Haraldsson aðstoðarlandsliðsþjálfari, Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Guðni Bergsson formaður KSÍ, á kynningarfundinum í Laugardal í dag. Vísir/Egill Þorsteinn Halldórsson segist ekki hafa verið tilbúinn til að taka við íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta þegar hann fékk símtal, sem reyndist reyndar endasleppt, frá KSÍ árið 2018. Nú sé hann reynslumeiri og betri þjálfari. „
Annað hvort gerir maður þetta núna eða kannski aldrei,“ sagði Þorsteinn við Vísi í höfuðstöðvum KSÍ í dag, eftir að hafa verið kynntur sem nýr landsliðsþjálfari. Þorsteinn, sem er 52 ára, hefur náð frábærum árangri með Breiðabliki á síðustu sex árum og meðal annars fagnað þremur Íslandmeistaratitlum, tveimur bikarmeistaratitlum og góðum árangri í Meistaradeild Evrópu. Nú er hann tekinn við landsliðinu sem óvænt missti þjálfara sinn þegar Jón Þór Hauksson hætti fyrir tveimur mánuðum, eftir að hafa stýrt liðinu áfram úr undankeppni EM. Klippa: Þorsteinn Halldórsson um nýja starfið og landsliðið „Þetta leggst bara vel í mig. Ég var nú ekki búinn að horfa til þessa starfs lengi enda bar þetta brátt að þannig séð, og ég var ekkert á leiðinni frá Breiðabliki,“ sagði Þorsteinn við Vísi. Þorsteinn sagði frá því í Pepsi Max mörkunum síðasta sumar að hann hefði komið til greina í landsliðsþjálfarastarfið þegar Jón Þór var ráðinn 2018. „Ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta. Mér var í sjálfu sér ekki boðið starfið en það var hringt í mig og spurt hvort ég hefði einhvern áhuga að koma og hitta þau. Ég var efins og það var liggur við bara skellt á mig,“ sagði Þorsteinn þá í viðtali við Helenu Ólafsdóttur. Aðspurður hvort þetta hefði ekki setið í honum núna svaraði þjálfarinn: „Ég var ekki tilbúinn þá. Þetta snerist meira um mig heldur en þá. Ég tel mig vera meira tilbúinn núna og lít svolítið á það þannig að annað hvort gerir maður þetta núna eða kannski aldrei. Ég bý yfir meiri reynslu núna. Búinn að spila fleiri Evrópuleiki. Gera góða hluti, og betri hluti eftir því sem árin hafa liðið. Þess vegna tel ég mig betur undirbúinn núna.“ Elísabet örugglega verið hvalreki fyrir landsliðið Elísabet Gunnarsdóttir greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net í byrjun vikunnar að hún væri „drullusvekkt“ að hafa ekki fengið landsliðsþjálfarastarfið nú. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði ástæðuna þá að KSÍ vildi ekki að landsliðsþjálfari sinnti öðru starfi en Elísabet hugðist þjálfa Kristianstad út þetta ár. Þorsteinn segir þetta ekki hafa áhrif á sig: „Alls ekki. Hún er mjög góður þjálfari og það hefði örugglega verið hvalreki fyrir landsliðið að fá hana. En ég get svo sem ekkert tjáð mig um af hverju [hún var ekki ráðin] eða eitthvað slíkt. Það er eitthvað sem ég hef enga stjórn á.“ Þorsteinn Halldórsson hefur náð frábærum árangri sem þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks.vísir/Hulda Margrét Forréttindi að vera komin á EM en þarf að ná árangri í undankeppni HM Sem fyrrverandi þjálfari Breiðabliks gjörþekkir Þorsteinn margar af landsliðskonum Íslands og hann er spenntur fyrir komandi tímum. Ísland leikur í lokakeppni EM sumarið 2021 en byrjar leið sína að HM 2023 með leikjum í undankeppninni í haust. Í febrúar er framundan mjög sterkt æfingamót með Frakklandi, Noregi og Sviss: „Hópurinn er góður. Ungar stelpur hafa verið að koma upp, tóku svolítið stór hlutverk eftir því sem leið á síðustu keppni, og þróunin á liðinu er bara góð. Ég tek við góðu búi og það eru forréttindi að vera komin í Evrópukeppnina. En auðvitað er þetta starf alltaf árangursmiðað. Ég þarf að ná árangri í undankeppninni fyrir HM líka, því auðvitað stefnum við á að komast á HM. Við þurfum að nota næstu mánuði vel til að undirbúa okkur og vera klár í haust. Ég vil bara sjá liðið verða betra. Við þurfum að halda áfram að gera liðið betra, bæta í, og markmiðið sem við stefnum að núna er að komast á HM. Í framhaldinu kemur svo EM [sumarið 2021] og við þurfum að skoða hvað við ætlum að gera þar,“ sagði Þorsteinn og kvaðst bæði brattur og bjartsýnn. Var ekki á staðnum og veit ekkert hvað var í gangi Aðspurður hvað honum fyndist um ákvörðun forvera síns í starfi, að hætta eftir að hafa að eigin sögn farið yfir strikið í samtölum við leikmenn þegar EM-sætinu var fagnað, svaraði Þorsteinn: „Ég hef í sjálfu sér enga beina skoðun á þessu. Ég var ekki á staðnum og veit ekkert hvað var í gangi þarna, þannig að ég hef í raun og veru ekkert til að tjá mig um það.“
EM 2021 í Englandi KSÍ Tengdar fréttir Fjögur komu til greina og voru öll íslensk Guðni Bergsson formaður KSÍ segir það hafa verið ákveðið lúxusvandamál hve góðir umsækjendur sóttust eftir starfi landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta. Mikil ánægja sé með að hafa á endanum getað ráðið Þorstein Halldórsson sem náð hefur frábærum árangri sem þjálfari Breiðabliks. 28. janúar 2021 14:30 Nýr landsliðsþjálfari ætlar með Ísland á HM í fyrsta sinn Þorsteinn Halldórsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta. Hann tók formlega við starfinu og ræddi við fjölmiðla í beinni útsendingu á Vísi í hádeginu. 28. janúar 2021 12:43 Blikar vonast til að ráða nýjan þjálfara á næstu dögum Þrátt fyrir að vera búnir að missa þjálfarann sinn og nokkra lykilmenn er engan bilbug á Íslandsmeisturum Blika að finna. Þeir stefna á að ráða nýjan þjálfara á næstu dögum. 28. janúar 2021 12:31 „KSÍ er að fá frábæra persónu og frábæran þjálfara“ Framkvæmdastjóri Breiðabliks, Eysteinn Pétur Lárusson, segir að Blikar sjái á eftir Þorsteini Halldórssyni en samgleðjist honum jafnframt að vera orðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Eysteini segir að Þorsteinn sé afar fær í sínu starfi. 28. janúar 2021 11:30 Þorsteinn ráðinn landsliðsþjálfari Þorsteinn Halldórsson hefur verið ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. 28. janúar 2021 10:08 „Hefði viljað ná henni núna því ég er ekki viss um að við náum henni seinna“ Helena Ólafsdóttir, spekingur Stöð 2 Sport og fyrrum landsliðsþjálfari kvenna, hefði viljað sjá Elísabetu Gunnarsdóttur taka við kvennalandsliðinu í fótbolta. Þetta sagði hún í Sportpakkanum á Stöð 2. 27. janúar 2021 19:04 Nýr landsliðsþjálfari byrjar á leik gegn Frökkum Fyrsti leikur nýs þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta verður gegn ógnarsterku liði Frakka. 26. janúar 2021 11:16 Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Fótbolti Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Sjá meira
Fjögur komu til greina og voru öll íslensk Guðni Bergsson formaður KSÍ segir það hafa verið ákveðið lúxusvandamál hve góðir umsækjendur sóttust eftir starfi landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta. Mikil ánægja sé með að hafa á endanum getað ráðið Þorstein Halldórsson sem náð hefur frábærum árangri sem þjálfari Breiðabliks. 28. janúar 2021 14:30
Nýr landsliðsþjálfari ætlar með Ísland á HM í fyrsta sinn Þorsteinn Halldórsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta. Hann tók formlega við starfinu og ræddi við fjölmiðla í beinni útsendingu á Vísi í hádeginu. 28. janúar 2021 12:43
Blikar vonast til að ráða nýjan þjálfara á næstu dögum Þrátt fyrir að vera búnir að missa þjálfarann sinn og nokkra lykilmenn er engan bilbug á Íslandsmeisturum Blika að finna. Þeir stefna á að ráða nýjan þjálfara á næstu dögum. 28. janúar 2021 12:31
„KSÍ er að fá frábæra persónu og frábæran þjálfara“ Framkvæmdastjóri Breiðabliks, Eysteinn Pétur Lárusson, segir að Blikar sjái á eftir Þorsteini Halldórssyni en samgleðjist honum jafnframt að vera orðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Eysteini segir að Þorsteinn sé afar fær í sínu starfi. 28. janúar 2021 11:30
Þorsteinn ráðinn landsliðsþjálfari Þorsteinn Halldórsson hefur verið ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. 28. janúar 2021 10:08
„Hefði viljað ná henni núna því ég er ekki viss um að við náum henni seinna“ Helena Ólafsdóttir, spekingur Stöð 2 Sport og fyrrum landsliðsþjálfari kvenna, hefði viljað sjá Elísabetu Gunnarsdóttur taka við kvennalandsliðinu í fótbolta. Þetta sagði hún í Sportpakkanum á Stöð 2. 27. janúar 2021 19:04
Nýr landsliðsþjálfari byrjar á leik gegn Frökkum Fyrsti leikur nýs þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta verður gegn ógnarsterku liði Frakka. 26. janúar 2021 11:16
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn