Enginn með kórónuveiruna í öndunarvél í fyrsta sinn í fimm vikur Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. apríl 2020 12:36 Martin Ingi Sigurðsson, yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, við bráðamóttökuna í Fossvogi. vísir/egill
Enginn sem smitast hefur af kórónuveirunni styðst nú við öndunarvél. Það hefur ekki gerst í rúmar fimm vikur, eða frá því að fyrsti kórónuveirusmitaði einstaklingurinn var tengdur við slíkan búnað. Martin Ingi Sigurðsson, yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, segir að þau gleðitíðindi hafi borist af gjörgæslunni í Fossvogi að síðasti sjúklingurinn, sem var í öndunarvél vegna covid 19-sjúkdóms, hafi losnað úr vélinni í morgun. Um töluverðan viðsnúning sé að ræða frá því þegar staðan var hvað alvarlegust. Þá hafi 16 einstaklingar í Reykjavík og á Akureyri verið meðhöndlaðir í öndunarvél á sama tíma vegna covid-sjúkdóms. Þrír þeirra létust en hin þrettán komust úr öndunarvélameðferð. Alls voru 13 einstaklingar innlagðir á sjúkrahús vegna veirunnar í gær, en von er á nýjum tölum um stöðu faraldursins núna klukkan 13. Virk smit voru 174 talsins og hafði fækkað um rúmlega 300 á tíu dögum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Fleiri fréttir Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Sjá meira