Félagsmálaráðuneytið styður Hjálparsímann vegna mikils álags Sylvía Hall skrifar 27. mars 2020 21:24 Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is er opið allan sólarhringinn. Vísir
Félagsmálaráðuneytið mun styðja við Hjálparsímaþjónustu Rauða krossins 1717 og netspjallið vegna mikils álags undanfarið. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segist vona að samstarfið tryggi það að viðkvæmir hópar fái nauðsynlegan stuðning og þjónustu. Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is er opið allan sólarhringinn þar sem þjálfaðir sjálfboðaliðar svara símtölum og spurningum sem berast. Með stuðningi félagsmálaráðuneytisins verður Hjálparsíminn tengdur öðrum aðilum sem veita viðkvæmum hópum þjónustu og ráðgjöf. Starfsfólk Hjálparsímans mun leitast við að greina aðstæður þeirra sem hafa samband, veita þeim stuðning og vísa þeim á fagaðila sem gætu boðið frekari aðstoð. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, segir Rauða krossinn þakklátan fyrir stuðninginn. Með þessu geti Rauði krossinn sinnt hlutverki sínu enn betur. „Það hefur verið gríðarleg aukning í samtölum sem okkur berast síðastliðnar vikur og við höfum fjölgað mjög þeim sem svara í símann. Sjálfboðaliðar hafa brugðist vel við og eru ómetanlegir fyrir okkar starf.“ Í fréttatilkynningu segir að stuðningurinn muni efla Hjálparsímann og netspjallið í að sinna meðal annars fjölskyldum, börnum og ungmennum, fötluðu fólki, öldruðum og fólki af erlendum uppruna á þeim fordæmalausu tímum sem nú eru uppi vegna COVID-19.
Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Félagsmál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira