Vetrinum ekki alveg lokið Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. mars 2020 06:45 Búast má við norðanhríð aðfaranótt miðvikudags. Vísir/Vilhelm
Það lægir víðast hvar á landinu þegar líður á daginn og dregur úr éljum vestanlands fyrir hádegi en síðdegis snýst í norðlæga átt með dálitlum éljum á norðanverðu landinu, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í nótt verður víða hægviðri og léttskýjað og því gæti frost farið undir tíu stig allvíða. Á morgun hlýnar talsvert í vestanátt og gæti hiti náð allt að átta stigum. „Áframhaldandi vestanátt á sunnudag og mánudag með rigningu eða súld en síðan er útlit fyrir norðan hríð aðfaranótt miðvikudags og mun kaldari loftmassa yfir landinu. Vetrinum er því ekki alveg lokið þó apríl sé á næsta leiti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vestan 8-13 og þykknar smám saman upp með lítilsháttar súld eða rigningu vestantil annars þurrt að kalla. Hlýnar í veðri og hiti víða yfir frostmarki um kvöldið. Á sunnudag:Vestan 8-15 og skýjað með köflum og lítilsháttar súld vestantil annars úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig, hlýjast S-lands. Á mánudag:Stíf vestanátt með súld eða rigningu vestantil, einkum síðdegis. Þurrt að kalla A-lands. Áfram milt. Á þriðjudag: Útlit fyrir hægari vestlæga átt og rigningu eða súld vestanlands. Snýst í norðlæga átt með snjókomu eða éljum við norðurströndina um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki norðantil en frostlaust syðra. Á miðvikudag:Norðlæg átt. Él norðantil en bjart með köflum um landið sunnan og vestanvert. Kólnar í veðri. Á fimmtudag:Útlit fyrir norðanátt og él norðantil og talsvert frost víðast hvar.
Veður Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Sjá meira