Spá snjókomu fyrir norðan Samúel Karl Ólason skrifar 20. september 2020 10:28 Haustið virðist ætla að skella á Norðurlandi. Vísir/Vilhelm
Ört dýpkandi lægð nálgast Ísland úr suðvestri. Henni mun fylgja væta og hvassviðri og verður víða sunna gola eða kaldi og rigning. Í dag gengur í suðvesta og vestan 13-20 m/s og bætir í úrkomu. Í kvöld fer lægðin norðaustur yfir land í kvöld og dregur víða úr vindi og úrkomu. Þó mun hvessa austantil á landinu og fyrir norðan breytist úrkoman í snjókomu á fjallvegum. Hiti verður 4 til 12 stig en kólna mun í kvöld. Á morgun spáir Veðurstofa Íslands suðvestlægri eða breytilegri átt 5-13 m/s og skúrum. Sums staðar norðanlands verður þó él eða slydduél. Hiti verður 1 til 8 stig og hlýjast syðst á landinu. #Veður: Seint í kvöld kólnar snögglega norðanlands. Snjóar þá á vegi s.s. á Þverárfjalli, Vatnsskarði, á Öxnadalsheiði og krapasnjór norður um á Siglufjörð og Ólafsfjörð. Áfram verða él á annesjum N-lands í fyrramálið. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) September 20, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag (haustjafndægur): Norðaustan 10-15 m/s norðvestantil, annars hægari breytileg átt. Víða él eða slydduél um landið norðanvert, en stöku skúrir syðra. Hiti 0 til 6 stig. Á miðvikudag: Norðanátt og él um landið norðanvert með hita kringum frostmark. Bjart með köflum sunnan heiða, en stöku skúr framan af degi og hiti að 6 stigum yfir daginn. Á fimmtudag: Norðlæg átt og él eða slydduél norðantil, en léttskýjað sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig, en víða vægt frost inntil landsins norðantil. Á föstudag: Fremur hæg breytileg átt og bjartviðri, en vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestantil síðdegis. Hlýnandi veður. Á laugardag: Útlit fyrir stífa suðlæga átt, rigningu og milt veður.
Veður Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Sjá meira