Ákærður fyrir að hrinda konu fram af svölum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2020 15:37 Atvikið átti sér stað í Hólahverfinu í Breiðholti í september í fyrra. Vísir/Vilhelm
Tæplega fertugur karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Hólahverfinu í Breiðholti þann 16. september í fyrra. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá ákærunni. Fjallað var um árásina í fréttum í fyrra en í ákæru segir að maðurinn hafi veist að konu, sem er á þrítugsaldri, með ofbeldi og hent henni fram af svölum í íbúð hans á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Konan slasaðist alvarlega við fallið en var þó ekki í lífshættu. Í ákæru á hendur karlmanninum kemur fram að konan hlaut heilahristing auk þess sem neðri kjálki hennar hafi brotnað á tveimur stöðum. Mjaðmabein hennar brotnaði og tennur sömuleiðis. Karlmaðurinn var í gæsluvarðhaldi vegna málsins í fjórar vikur en sleppt í framhaldinu. Maðurinn var á skilorði þegar hann var handtekinn. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu í október í fyrra að karlinn og konan hefðu þekkst. Vitni hefðu orðið að því sem fram fór og lögregla hefði rætt við þau. Konan fer fram á rúmlega 7,5 milljónir króna í skaðabætur frá árásarmanninum. Málið verður þingfest þann 1. september.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira