Lakers vilja bæta við sig leikmanni fyrir lokasprettinn Ísak Hallmundarson skrifar 5. mars 2020 15:30 J.R. Smith og LeBron James spiluðu saman hjá Cleveland Cavaliers vísir/getty
Los Angeles Lakers eru á meðal þeirra NBA-liða sem þykja hvað líklegust til að berjast um NBA-meistaratitilinn í vor. Þeir leita nú leiða til að styrkja sig fyrir komandi átök. Lakers er með eitt laust pláss í leikmannahópi sínum eftir að þeir létu Troy Daniels fara frá félaginu fyrr í vikunni. Þeir skoða nú ýmsa möguleika og koma tveir leikmenn helst til greina. J.R. Smith, sem lék með Cleveland Cavaliers og vann meistaratitilinn með LeBron James árið 2016, er annar þeirra leikmanna sem Lakers vilja fá til liðs við sig. Hann skoraði 12 stig og tók 4 fráköst í oddaleiknum við Golden State Warriors árið 2016 þegar Cleveland vann sinn fyrsta meistaratitil. Hann hefur hinsvegar ekki spilað leik í NBA síðan í nóvember 2018 þegar samningi hans við Cleveland var rift. Hinn leikmaðurinn sem liðið er að skoða er bakvörðurinn Dion Waiters sem lék síðast með Miami Heat á þessu tímabili en kom aðeins við sögu í þremur leikjum. Waiters var valinn nr. 4 í nýliðavalinu árið 2012 og á tímabilinu í fyrra spilaði hann 44 leiki fyrir Heat og var með 12 stig, 2,8 stoðsendingar og 2,6 fráköst að meðaltali í þeim leikjum. Waiters er með sama umboðsmann og LeBron James og Anthony Davis sem spila fyrir Lakers. Bæði Smith og Waiters hafa mætt á æfingu hjá Lakers-liðinu í vikunni til reynslu. LA Lakers eru á toppi Vesturdeildarinnar í NBA og hafa unnið 47 leiki af 60. Efstu 8 lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina og sigurvegarinn mætir svo sigurvegara Austurdeildarinnar í úrslitum um NBA-meistaratitilinn.
NBA Mest lesið Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira