Spartak Trnava staðfestir komu Birkis Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. júlí 2020 10:30 Birkir Valur í treyju Spartak Trnava. Vísir/Spartak Trnava
Slóvakíska knattspyrnufélagið Spartak Trnava staðfesti í gær félagaskipti hægri bakvarðarins Birkis Vals Jónssonar. Hann gengur til liðs við Spartak frá uppeldisfélagi sínu HK þar sem hann hefur leikið alls 104 deild- og bikarleiki. Spartak og HK sömdu um sex mánaða lánsamning en slóvakíska félagið hefur síðan forkaupsrétt á hægri bakverðinum sem hefur til þessa leikið allar mínútur HK í Pepsi Max deildinni í sumar. „Ég æfði handbolta og fótbolta í 14-15 ár en valdi svo fótboltann,“ sagði Birkir Valur í viðtali eftir að skiptin voru staðfest. „Ég vissi ekkert um slóvakíska boltann en aðstæður hér hafa komið mér verulega á óvart. Trnava er flott borg og hér er allt til alls. Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað.“ sagði Birkir einnig. Birkir hefur alls leikið 27 leiki fyrir yngri landslið Íslands og sagðist stefna á að verða byrjunarliðsmaður innan tíðar í liði Spartak. Deildin í Slóvakíu fer af stað þann 8. ágúst og gæti farið svo að Birkir leiki sinn fyrsta leik er Spartak heimsækir Zemplín Michalovce.
Fótbolti Íslenski boltinn HK Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Sjá meira