Lengjudeild kvenna: ÍA og Keflavík með stórsigra Ísak Hallmundarson skrifar 7. júlí 2020 22:30 Keflavíkurkonur eru á toppi deildarinnar. Mynd/víkurfréttir
Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. ÍA, sem fyrir leik hafði gert jafntefli í öllum þremur leikjum sínum, vann stóran sigur á Völsungi, 4-0. Með sigrinum fara þær í 5. sæti deildarinnar með sex stig en Völsungur er án stiga á botninum og á enn eftir að skora mark. Dröfn Einarsdóttir skoraði þrennu fyrir Keflavík þegar liðið vann 4-0 útisigur á Fjölni í Grafarvogi. Þær eru nú á toppnum með tíu stig, en Fjölnir er í 7. sæti með þrjú stig. Í Skagafirði vann Tindastóll góðan sigur á Augnabliki, 1-0, en eina mark leiksins skoraði Hugrún Pálsdóttir á 21. mínútu. Skagafjarðarstelpur eru nú í 2. sæti með tíu stig, jafnmörg stig og Keflavík sem er á toppnum. Augnablik er í 8. sæti með eitt stig eftir þrjá leiki. Þá tók Víkingur Reykjavík á móti Gróttu í Fossvoginum. Lokatölur þar 1-3 fyrir Gróttu, Helga Rakel Fjalarsdóttir, María Lovísa Jónasdóttir og Emelía Óskarsdóttir skoruðu mörk Gróttu en Stefanía Ásta Tryggvadóttir skoraði eina mark Víkinga. Grótta í 4. sætinu með átta stig en Víkingsstelpur í níunda og næstneðsta sæti með eitt stig.
Íslenski boltinn Lengjudeildin Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira