Mikael Anderson hluti af Midtjylland-liði sem setti met í gær Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. júní 2020 11:00 Mikael í leiknum gegn AaB í gær. Jan Christensen/Getty Images
Mikael Neville Andersen spilaði allan leikinn er Midtjylland vann AaB 2-0 á útivelli í gær í dönsku úrvalsdeildinni. Þar með hefur Midtjylland unnið níu leiki í röð á útivelli í deildinni og er það nýtt met. Alls hefur liðið unnið þrettán af fjórtán útileikjum á tímabilinu og gert eitt jafntefli. Raunar virðist liðinu líða betur á útivelli en liðið hefur tapað þremur leikjum og gert eitt jafntefli í þeim fjórtán leikjum sem það hefur leikið á heimavelli sínum eða MCH vellinum eins og hann heitir í dag. Mikael Anderson hefur verið í kringum íslenska landsliðið undanfarið en alls hefur hann leikið fimm A-landsleiki ásamt þrettán leikjum fyrir U21 árs landsliðið. Hann hefur allan sinn feril leikið í Danmörku og er nú fastamaður í byrjunarliði Midtjylland sem trónir á toppi deildarinnar með 68 stig eða tólf stigum meira en FC Kaupmannahöfn sem situr í öðru sæti. Mikael hefur leikið 23 leiki af þeim 28 sem Midtjylland hefur leikið í deildinni og skorað í þeim þrjú mörk. Þá leikur Íslandsvinurinn Alexander Scholz með liðinu en hann gerði garðinn frægan með Stjörnunni hér á landi.
Fótbolti Danski boltinn Tengdar fréttir Mikael og félagar tróna á toppnum á meðan hvorki gengur né rekur hjá Söndru Maríu og stöllum hennar Mikael Andersen og Sandra María Jessen voru í eldlínunni með liðum sínum í dag en leikir þeirra voru hins vegar eins ólíkir og hægt verður. 14. júní 2020 14:59 Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Fótbolti Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Sjá meira
Mikael og félagar tróna á toppnum á meðan hvorki gengur né rekur hjá Söndru Maríu og stöllum hennar Mikael Andersen og Sandra María Jessen voru í eldlínunni með liðum sínum í dag en leikir þeirra voru hins vegar eins ólíkir og hægt verður. 14. júní 2020 14:59
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn