Yfir 100 manns nú greinst með kórónuveiruna á Íslandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. mars 2020 11:34 Frá því í gærkvöldi hafa fimmtán tilfelli af veirunni greinst. Vísir/Vilhelm Alls hafa nú 103 einstaklingar greinst með kórónuveiruna sem veldur sjúkdómnum COVID-19 á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna. Í tilkynningu segir að frá því í gærkvöldi hafi fimmtán tilfelli af veirunni verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. 80 smit tengjast ferðum erlendis en 23 eru innanlandssmit. Uppruna flestra smita má rekja til Norður-Ítalíu og skíðasvæða í Ölpunum en þrjú smit hafa greinst frá einstaklingum sem komu hingað frá Bandaríkjunum. Um þúsund sýni hafa verið tekin í heild. Klukkan 12 hefst aukafréttatími Stöðvar 2 í beinni útsendingu í sjónvarpi og hér á Vísi. Þar verður rætt við Rögnvald Ólafsson, verkefnastjóra hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fréttin hefur verið uppfærð.
Alls hafa nú 103 einstaklingar greinst með kórónuveiruna sem veldur sjúkdómnum COVID-19 á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna. Í tilkynningu segir að frá því í gærkvöldi hafi fimmtán tilfelli af veirunni verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. 80 smit tengjast ferðum erlendis en 23 eru innanlandssmit. Uppruna flestra smita má rekja til Norður-Ítalíu og skíðasvæða í Ölpunum en þrjú smit hafa greinst frá einstaklingum sem komu hingað frá Bandaríkjunum. Um þúsund sýni hafa verið tekin í heild. Klukkan 12 hefst aukafréttatími Stöðvar 2 í beinni útsendingu í sjónvarpi og hér á Vísi. Þar verður rætt við Rögnvald Ólafsson, verkefnastjóra hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fréttin hefur verið uppfærð.
Wuhan-veiran Heilbrigðismál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira