Norðaustanstrekkingur nokkuð víða og él á víð og dreif Atli Ísleifsson skrifar 3. apríl 2020 06:57 Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14, eins og það leit út í morgun. Veðurstofan
Veðurstofan spáir norðaustanstrekkingi, fimm til fimmtán metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður á Vestfjörðum og við suðurströndina í kvöld. Sömuleiðis má búast við éljum á víð og dreif, en líklega verður þó þurrt um landið suðvestanvert. Spáin gerir ráð fyrir að það hvessi í nótt þar sem verður 15 til 25 metrar á sekúndu í fyrramálið, hvassast syðst. Áfram verður þurrt að mestu á Suðvestur- og Vesturlandi, en él í öðrum landshlutum. Frost um allt land. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðurland, Suðausturland og Miðhálendið á morgun. „Dregur svo dálítið úr vindi á laugardagskvöld en síðdegis á sunnudag fer lægðin loksins að reyna landgöngu og fer yfir landið seint á sunnudag og á mánudag. Hlánar víða á láglendi og lægir í kjölfar skilanna en ekki er um mjög mikil hlýindi að ræða með þessari lægð. Svo taka við rólegri dagar og hiti nálægt frostmarki,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðurland, Suðausturland og Miðhálendið á morgun. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í norðaustan 13-23 m/s, hvassast og snjókoma syðst, en annars víða él og skafrenningur. Frost 0 til 10 stig, minnst við S-ströndina. Á sunnudag: Norðaustanstormur og snjókoma eða skafrenningur, mest úrkoma S- og A-til. Dregur úr frosti. Á mánudag: Norðaustanstormur með hríðarveðri á Vestfjörðum, annars mun hægari austlæg átt og rigning eða slydda með köflum. Suðvestanátt og skúrir eða él SV-til um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Austlæg átt, snjókoma eða slydda með köflum og hiti nálægt frostamarki. Á miðvikudag: Breytilega átt með dálitlum éljum víða um land. Heldur svalara. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum eða éljum um landið V-vert, en þurrt fyrir austan. Allvíða frostlaust á láglendi að deginum.
Veður Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Sjá meira