Blikar slógu ÍR úr bikarnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. nóvember 2019 20:55 Breiðablik vann sterkan sigur á ÍR-ingum í bikarnum í dag Vísir/Daníel
Grindavík, Sindri, Njarðvík, Þór Akureyri og Breiðablik eru komin áfram í aðra umferð Geysisbikars karla. Það urðu ein óvænt úrslit í Geysisbikarnum í dag og komu þau í Smáranum í Kópavogi. Þar tóku heimamenn í Breiðabliki, sem féllu úr Domino's deild karla síðasta vor, á móti ÍR. ÍR kom inn í þennan leik með sigur á Íslandsmeisturum KR á bakinu. Blikar byrjuðu leikinn betur og þeir voru 53-43 yfir í hálfleik. Breiðhyltingar áttu hins vegar ágætan þriðja leikhluta og náðu að minnka muninn í þrjú stig fyrir síðasta fjórðunginn. Þar ákváðu Blikar að fara í þristasýningu og settu hvern þristinn niður á fætur öðrum og fóru með 94-86 sigur. Hin úrvalsdeildarliðin sem voru í eldlínunni í dag fóru hins vegar öll nokkuð þægilega áfram. Grindavík vann 96-77 sigur á 1. deildar liði Hamars og Njarðvík vann þægilegan 68-81 sigur á Hetti á Egilsstöðum. Þá fór Þór Akureyri létt með Snæfell 92-70. Þá hafði Sindri betur gegn Skallagrími í Borgarnesi í slag 1. deildarliða. Lokatölur þar urðu 80-71. Liðin bætast í hóp með Álftanesi og Reyni Sandgerði í annarri umferðinni, en þau komust áfram á föstudaginn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Enski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira