Átján andlit Ingibjargar Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. september 2019 21:00
Listakona sem greindist með geðhvarfasýki fyrir rúmu ári skrásetti líðan sína með því að taka ljósmyndir af sjálfri sér í bataferlinu. Sýningin heitir Sálræn litadýrð og er liður í hátíðinni Klikkuð menning sem nú fer fram. Á sýningunni sem var sett upp í Hafnarhúsinu eru átján ljósmyndir sem við fyrstu sýn virðast vera af mörgum konum en þegar betur er að gáð kemur annað í ljós. „Ég er þarna að fara í gegnum það hvernig mér leið á hverjum tíma og allar myndirnar eru af mér. Ég skráði þannig hvernig batinn getur verið mismunandi. Hann er alls konar. Ég er að fara í gegnum timabilið frá því ég er greind með geðhvarfasýki og allar þær mismunandi tilfinningar sem komu upp hjá mér í tengslum við það. Þarna var ég að reyna að finna út hver ég er sem manneskja og til þess þarf að prófa allt,“ segir Ingibjörg Eyfjörð listakona um myndirnar. Ingibjörg segir jafnframt að útlit sitt tengist persónuleika sínum beint. „Ég er rosalega mikið út um allt og er mikið fiðrildi. Ég er því ekki alltaf eins og þess vegna er til að mynda augnliturinn ekki eins í dag,“ segir Ingibjörg.
Myndlist Mest lesið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira