Stef úr hversdagsleika Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 25. september 2019 22:30 Guðlaug notar form og efni níunda og tíunda áratugarins. Fréttablaðið/Anton Brink
Verkin sýna merkin er fyrsta einkasýning Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur frá því hún lauk mastersnámi sínu frá frá Koninklijke Academie í Gent, Belgíu, á síðasta ári. Hún rak um tíma sýningarrými í Antwerpen ásamt sex íslenskum myndlistarmönnum. Þessa stundina dvelur hún á Íslandi. Um þessa sýningu, sem stendur til 28. september í Harbinger, segir hún: „Á sýningunni vinn ég með ýmis kunnugleg stef úr íslenskum hversdagsleika, ég hef verið að grandskoða þau form sem byggja upp nærumhverfi okkar eins og stigaganga, gluggasyllur og anddyri, þau form, efni og liti sem þar má finna og ég svo endurraða í skúlptúrum. Úr verða ný sambönd byggð á kunnuglegum stefjum fyrir áhorfendur að kanna. Ég nota form og efni níunda og tíunda áratugarins, svo á sýningunni má finna efnisleg fortíðarstef sem tengja áhorfendur við aðra tíma og aðra efniskennd en þá sem umkringir okkur í nútímanum.“Vísanir í virkni Í því samhengi nefnir Guðlaug titil sýningarinnar, Verkin sýna merkin: „Titillinn gefur eins konar leiðbeiningar um hvernig skoða megi sýninguna, þar sem verkin gefa hver og eitt hlutverk sitt til kynna. Á sýningunni velti ég fyrir mér ætluðum hlutverkum verka og áhorfanda, hvernig áhorfandinn getur haft áhrif á upplifum sína og annarra á verkunum. Verkin hér á sýningunni bera öll með sér vísanir í einhverja virkni eða hlutverk og það er áhorfandans að koma auga á það, hvort sem það er með því að snerta, setjast eða jafnvel drekka og borða. Þannig virkjar áhorfandinn sýninguna og verður um leið þáttur af henni.“ Eitt verkanna á sýningunni minnti blaðamann á eins konar ofn en í ljós kom að listamaðurinn var þar með stigahandrið í huga. „Þú nefnir ofn og þetta verk minnir svo sannarlega á ofn þótt ég hafi verið innblásin af stigahandriði,“ segir Guðlaug. „Fólk kemur hingað inn og einn sér eitthvert ákveðið samhengi í einu verki meðan annar gestur sér eitthvað allt annað. Báðir eiga þó sameiginlegt að vísa í þessi hversdagslegu stef sem sýningin snýst um.“Ekkert bannað Meðal annarra verka er verkið Hvar er klukkan, falið verk sem er þó stærsta verk sýningarinnar, vatnstankur sem er jafnframt skúlptúr sem myndlistarkonan smíðaði og virkar fullkomlega, og snakkskúlptúr fyrir gluggakistur, í henni má finna jarðhnetur með teiknuðum andlitum sem gestir mega borða. „Á þessari sýningu geta áhorfendur fengið sér að borða og drekka, sest niður og tekið sér pásu en þó er þátttaka fólgin í hverri hvíld þar sem skúlptúrarnir virkjast í leiðinni. Þannig ráða áhorfendur því sjálfir hvort og hvernig þeir taka þátt í sýningunni,“ segir Guðlaug. „Sumir eru hikandi og óvissir, vita ekki hvort þeir megi snerta verkin eða borða en svo eru aðrir sem vaða beint í allt, setjast niður og snerta og gera allt sem þeir vilja. Hér er nefnilega ekkert bannað.“ Sýningin stendur til 28. september í Harbinger, Freyjugötu 1.
Birtist í Fréttablaðinu Myndlist Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira