Vandræðalaust hjá Chelsea í Írlandi Anton Ingi Leifsson skrifar 13. júlí 2019 14:50 Frank Lampard er tekinn við félaginu sem hann lék svo lengi. vísir/getty
Chelsea lenti ekki í miklum vandræðum er liðið mætti írska úrvalsdeildarliðinu, St. Patrick's Athletic, í æfingarleik í dag. Lokatölur urðu 4-0. Frank Lampard er tekinn við stjórnartaumunum hjá Chelsea og hann og lærisveinar hans eru nú á Írlandi. Þetta var annar æfingarleikur liðsins í ferðinni en liðið gerði jafntefli við Bohemians fyrr í vikunni.Team news is in for our second game of the week! #CFCinDublinpic.twitter.com/4gu3VMPCaz — Chelsea FC (@ChelseaFC) July 13, 2019 Chelsea var, eins og búist var við, mun sterkari aðilinn og Michy Batshuayi fékk tækifæri í framlínunni. Hann þrumaði boltanum annars í slá eftir stundarfjórðung. Fyrsta markið kom svo mínútu síðar er Mason Mount skoraði eftir sendingu Mateo Kovacic. Mount er tvítugur miðjumaður sem sló í gegn undir stjórn Lampard hjá Derby á síðustu leiktíð. Chelsea bætti við öðru marki á 32. mínútu er vinstri bakvörðurinn Emerson tvöfaldaði forystuna en langskot hans lak í netið. 2-0 í hálfleik og gerði Lampard ellefu breytingar í hálfleik.The second half has begun and once again Lampard has made 11 changes at the break. 0-2 [46'] #CFCinDublinpic.twitter.com/wT2XvHF9Na — Chelsea FC (@ChelseaFC) July 13, 2019 Rólegra var yfir leiknum í síðari hálfleik en þriðja mark Chelsea skoraði heimsmeistarinn Oliver Giroud. Hann afgreiddi þá góða fyrirgjöf Kenedy í netið. Skömmu fyrir leikslok var Giroud aftur á skotskónum og lokatölur 4-0. Chelsea heldur nú til Japan en liðið mætir Kawasaki Frontale í æfingarleik á föstudaginn kemur. Í vikunni á eftir bíður svo fyrsti stóri leikurinn er liðið mætir Barcelona í æfingarleik, einnig í Japan.
Enski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira