SA telur ekki hafa verið mikla þörf fyrir nýja persónuverndarlöggjöf Eiður Þór Árnason skrifar 16. júlí 2019 14:30 Samtök atvinnulífsins hafa áður gagnrýnt löggjöfina. Getty/Pe3check - SA
Í gær var ár liðið frá því að GDPR, persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins tók gildi hér á landi. Um var að ræða umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á persónuverndarlöggjöfinni í tvo áratugi. Þórður Sveinsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd, telur að áhrif löggjafarinnar séu ekki enn að fullu komin fram:Þórður Sveinsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd.Fréttablaðið/Valgarður„Eins og ávallt þegar ný löggjöf tekur gildi má gera ráð fyrir að ýmis atriði mótist nánar við framkvæmd hennar.“ Þar sem um sé að ræða löggjöf frá Evrópusambandinu, beri líka að taka mið af túlkun stofnanna sambandsins og beitingu hennar í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Þórður segir að ein helsta breytingin sem innleiðingin hafi fært með sér sé að persónuverndarlögin nái nú líka til fyrirtækja utan EES ef þau meðhöndla upplýsingar sem tengjast einstaklingum hér á landi, og sú meðhöndlun tengist vörum eða þjónustu sem Íslendingum býðst á Evrópska efnahagssvæðinu. Einnig kveður löggjöfin á um að fyrirtæki haldi skrá um alla vinnslu persónuupplýsinga og „að í ákveðnum tilvikum skuli fara fram mat á áhrifum á persónuvernd áður en vinnsla persónuupplýsinga hefst.“Persónuvernd glímir enn við afleiðingar undirmönnunar Í kjölfar þess að nýja persónuverndarlöggjöfin tók gildi birti stofnunin leiðbeiningar sem ætlað var skýra betur innleiðinguna, svaraði fjölda fyrirspurna og reyndi að stuðla að almennri vitundarvakningu um áhrif laganna með fyrirlestraferð víða um land. Þórður segir að Persónuvernd vonist til að þessar aðgerðir hafi auðveldað góða innleiðingu GDPR löggjafarinnar. Þó hafi stofnunin á sama tíma einnig þurft að glíma við mikinn fjölda uppsafnaðra eldri mála í kjölfar þess að stofnunin var mjög undirmönnuð um langt hríð. Nýlega hafi starfsmönnum fjölgað talsvert hjá Persónuvernd, en enn sé verið að vinna niður gömul mál frá því fyrir gildistökuna. Opnum málum hjá stofnuninni hafi þó fækkað úr 1200 um síðustu áramót niður í rúmlega 600. Þórður segir jafnframt að af þeim fjölda erinda sem Persónuvernd berist megi ætla að fyrirtækjum sé almennt umhugað um að fylgja kröfum reglugerðarinnar.Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SASASegir innleiðinguna hafa verið flókna fyrir mörg fyrirtæki Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs hjá Samtökum atvinnulífsins segir að innleiðing löggjafarinnar hafi reynst flókin fyrir mörg fyrirtæki, en að honum sýnist að fyrirtækjum „hafi upp til hópa gengið þokkalega vel að innleiða þetta.“ Það hafi hins vegar verið mjög kostnaðarsamt fyrir mörg fyrirtæki og að erfitt sé að leggja mat á þann kostnað sem hafi fylgt nýju löggjöfinni. Mikið umstang hafi fylgt innleiðingunni fyrir fyrirtæki og hafi mörg þeirra þurft að sækja sér ráðgjöf sérstaklega vegna þessa.Ekki viss um hvort að mikið umstang hafi skilað markverðum breytingum „Maður spyr sig líka hvort að almenningur, bara venjulegt fólk eins og ég og þú upplifi sínar persónuupplýsingar eitthvað öruggari núna en fyrir ári síðan . Ég er ekki viss um það að þetta gríðarlega umstang hafi skilað sér þannig að upplýsingarnar séu nú eitthvað öruggari.“ Davíð segist þó vona að svo sé raunin. „Ég held í rauninni að það hafi ekki verið mjög mikil og knýjandi þörf á þessu, almennt hafi fyrirtæki verið að ganga mjög vel um persónuupplýsingar fólks fyrir þetta. Við höfum verið með fína löggjöf.“ Hins vegar segist Davíð átta sig á því að þetta sé einfaldlega hluti af því að vera aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Samtökum atvinnulífsins er ekki kunnugt um að nokkur fyrirtæki hafi þurft að gera veigamiklar breytingar á rekstri sínum með tilkomu nýju löggjafarinnar. Davíð segir SA fagna því að Persónuvernd hafi tekið þá stefnu að reyna að aðstoða fyrirtæki við innleiðinguna: „Auðvitað er það jákvætt þegar stjórnvöld setja sig frekar í það hlutverk að reyna að hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum að fara að lögum, í stað þess að reyna að góma menn fyrir að brjóta á einhverjum tæknilegum reglum.“
Persónuvernd Tengdar fréttir Sekt Google í Frakklandi verður mikilvægt prófmál á sviði persónuverndar Google hyggst láta reyna á lögmæti 50 milljóna evra sektar, sem Persónuvernd Frakklands lagði á fyrirtækið, fyrir dómstólum. Málið er talið mikilvægt prófmál um nýja persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins (GDPR). 28. janúar 2019 16:30 Ný persónuverndarreglugerð vonandi innleidd fyrir þinglok Dómsmálaráðherra segist nokkuð bjartsýnn á að Alþingi takist að afgreiða nýtt persónuverndarfrumvarp fyrir þinglok. Nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd gagnrýnir vinnubrögðin. Reglugerðin felur í sér viðamiklar breytingar 26. maí 2018 08:30 Hið opinbera komi til móts við kostnað vegna GDPR Viðskiptaráð Íslands skorar á stjórnvöld að draga úr opinberum álögum á fyrirtæki svo þau séu betur í stakk búinn til að standa straum af þeim kostnaði sem til kominn er vegna innleiðingar fyrirtækjanna á GDPR, nýju persónuverndarlögunum. 8. nóvember 2018 14:48 Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Fleiri fréttir Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Sjá meira
Sekt Google í Frakklandi verður mikilvægt prófmál á sviði persónuverndar Google hyggst láta reyna á lögmæti 50 milljóna evra sektar, sem Persónuvernd Frakklands lagði á fyrirtækið, fyrir dómstólum. Málið er talið mikilvægt prófmál um nýja persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins (GDPR). 28. janúar 2019 16:30
Ný persónuverndarreglugerð vonandi innleidd fyrir þinglok Dómsmálaráðherra segist nokkuð bjartsýnn á að Alþingi takist að afgreiða nýtt persónuverndarfrumvarp fyrir þinglok. Nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd gagnrýnir vinnubrögðin. Reglugerðin felur í sér viðamiklar breytingar 26. maí 2018 08:30
Hið opinbera komi til móts við kostnað vegna GDPR Viðskiptaráð Íslands skorar á stjórnvöld að draga úr opinberum álögum á fyrirtæki svo þau séu betur í stakk búinn til að standa straum af þeim kostnaði sem til kominn er vegna innleiðingar fyrirtækjanna á GDPR, nýju persónuverndarlögunum. 8. nóvember 2018 14:48