Handtekinn eftir átök í heimahúsi Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. júní 2019 06:51 Fólkið tókst á í íbúðarhúsi í hverfi 105 í Reykjavík. Vísir/vilhelm
Tilkynnt var um slagsmál og læti í heimahúsi í Hlíðahverfi í Reykjavík á sjöunda tímanum í gær. Tveir karlmenn og ein kona voru þar í átökum en minniháttar áverkar voru á öllum. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Málið er í rannsókn, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru 83 mál bókuð í dagbók lögreglu frá því klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Skömmu fyrir klukkan sjö síðdegis í gær fékk lögregla nokkrar tilkynningar um hugsanlega ölvaðan ökumann í austurbænum. Tilkynnt var um rásandi aksturslag ökumannsins, sem ók upp á kanta, og var hann stöðvaður stuttu síðar. Ökumaður reyndist ofurölvi og var vistaður í fangageymslu eftir sýnatöku. Tilkynnt var um umferðarslys á Meðalfellsvegi, einnig á sjöunda tímanum. Bifreið hafnaði utan vegar í skurði. Ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akstur, var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítala með minniháttar áverka. Á níunda tímanum var svo tilkynnt um þjófnað úr bifreið í Hlíðunum þar sem ýmsum smámunum var stolið. Þá var tilkynntum slys utandyra í Breiðholti skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Ölvaður sjötugur maður með áverka á höfði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Vitni sögðu hann hafa dottið á höfuðið.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Skólaliðum sagt upp hjá borginni Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Sjá meira