Anníe Mist keppir ekki á CrossFit mótinu í Reykjavík í maí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2019 13:00 Anníe Mist Þórisdóttir. Mynd/Instagram/anniethorisdottir
Anníe Mist Þórisdóttir tilkynnti það í gær á kynningu á þriðju æfingunni í CrossFit Games Open í Perlunni að hún muni ekki keppa á stóra alþjóðlega CrossFit mótinu fer fram í Reykjavík í byrjun maí. Sigurvegarar á CrossFit mótinu í Reykjavík tryggja sér sæti á heimsleikunum Madison í haust en þær Katrín Tanja Davíðsdóttir (í Suður-Afríku) og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir (í London) hafa báðar tryggt sér farseðil með sigri á slíku móti erlendis. „Nei ég mun ekki keppa á þessu móti aðallega vegna þess að ég reyni að vinna allar mínar keppnir og ef ég myndi vinna þessa keppni þá yrði alltaf sett spurningarmerki við þann sigur. Þótt ég kæmi ekkert nálægt skipulagi keppninnar þá yrði þetta dálítið ósanngjarnt,“ sagði Anníe Mist. Anníe Mist er í aðalhlutverki hjá CrossFit Reykjavík sem heldur mótið. Hún vill ekki vera sökuð um að að nýta sér aðstöðu sína. Eitt af grunngildum CrossFit móta í dag er að geta komið keppendum á óvart með sérstökum æfingum sem þeir hafa ekki getað undirbúið sig beint fyrir. Þá er von á öllu og keppandi í innsta hring ætti kannski að vita meira en aðrir. „Ég mun ekki keppa á þessu móti en ég mun vera á gólfinu. Við gerum eitthvað virkilega svalt,“ sagði Anníe Mist um mótið í Perlunni í nótt. Anníe Mist Þórisdóttir hefur keppt á fimm síðustu heimsleikum og alls níu sinnum á heimsleikunum á síðustu tíu árum. Heimsleikarnir í ár geta orðið hennar tíundu á ferlinum. Hún hefur unnið tvisvar sinnum (2011 og 2012) og alls komist fimm sinnum á verðlaunapall en hún varð önnur 2010 og 2014 og tók síðan bronsið árið 2017. CrossFit mótið í Reykjavík, Reykjavik CrossFit Championship, fer fram frá 3. til 5. maí 2019.
CrossFit Tengdar fréttir Katrín Tanja: Ég er heppnasta stelpa í heimi Katrín Tanja Davíðsdóttir er himinlifandi með þjálfara sinn Ben Bergeron og umboðsmanninn sinn Matt O'Keefe og skrifar þakkarpistil til þeirra á Instagram. 8. febrúar 2019 22:30 Keppt í CrossFit um miðja nótt í Perlunni Björgvin Karl Guðmundsson og Frederik Aegidius munu keppa í CrossFit á snúningsgólfinu á efstu hæð í Perlunni aðfaranótt föstudags. 6. mars 2019 07:00 Sjáðu beinu CrossFit útsendinguna frá Perlunni í nótt Það var mikið um að vera í Perlunni í nótt þegar CrossFit samtökin voru með beina útsendingu frá kynningu á þriðju æfingunni í CrossFit Games Open. Fyrir þá sem misstu af fjörinu þá er hægt að horfa aftur á þessa fróðlegu útsendingu. 8. mars 2019 12:00 „Bless London, halló Madison“ Klaufalegu mistökin sem strítt hafa Söru Sigmundsdóttur á mikilvægum Cross Fit mótum í gegnum tíðina voru hvergi sjáanleg í London um helgina. 25. febrúar 2019 11:30 Katrín Tanja æfði með þeim bestu í heimi Katrín Tanja Davíðsdóttir æfði með konunni sem tók af henni titilinn og hefur ekki látið hann af hendi síðan. 4. mars 2019 11:30 Hrósar Katrínu Tönju: Fengu að sjá meistarann sem þau komu til að sjá Katrín Tanja Davíðsdóttir stóðst pressuna og tryggði sér glæsilegan sigur á CrossFit mótinu "Fittest in Cape Town“ um síðustu helgi. Sigurinn færði henni sæti á heimsleikunum næsta haust. 5. febrúar 2019 12:30 Katrín Tanja: Nú getum við verið vinir aftur Katrín Tanja Davíðsdóttir varð um helgina fyrsti íslenski CrossFit keppandinn til að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana í Madison í ágúst. 4. febrúar 2019 14:00 Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Fleiri fréttir Reknu vinirnir mætast í London Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Dagskráin í dag: Fram mætir í Kópavoginn og Stúkan gerir allt upp Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ „Í lok dagsins þá eru þetta þrjú stig fyrir okkur og það er það eina sem skiptir máli“ „Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Sjá meira
Katrín Tanja: Ég er heppnasta stelpa í heimi Katrín Tanja Davíðsdóttir er himinlifandi með þjálfara sinn Ben Bergeron og umboðsmanninn sinn Matt O'Keefe og skrifar þakkarpistil til þeirra á Instagram. 8. febrúar 2019 22:30
Keppt í CrossFit um miðja nótt í Perlunni Björgvin Karl Guðmundsson og Frederik Aegidius munu keppa í CrossFit á snúningsgólfinu á efstu hæð í Perlunni aðfaranótt föstudags. 6. mars 2019 07:00
Sjáðu beinu CrossFit útsendinguna frá Perlunni í nótt Það var mikið um að vera í Perlunni í nótt þegar CrossFit samtökin voru með beina útsendingu frá kynningu á þriðju æfingunni í CrossFit Games Open. Fyrir þá sem misstu af fjörinu þá er hægt að horfa aftur á þessa fróðlegu útsendingu. 8. mars 2019 12:00
„Bless London, halló Madison“ Klaufalegu mistökin sem strítt hafa Söru Sigmundsdóttur á mikilvægum Cross Fit mótum í gegnum tíðina voru hvergi sjáanleg í London um helgina. 25. febrúar 2019 11:30
Katrín Tanja æfði með þeim bestu í heimi Katrín Tanja Davíðsdóttir æfði með konunni sem tók af henni titilinn og hefur ekki látið hann af hendi síðan. 4. mars 2019 11:30
Hrósar Katrínu Tönju: Fengu að sjá meistarann sem þau komu til að sjá Katrín Tanja Davíðsdóttir stóðst pressuna og tryggði sér glæsilegan sigur á CrossFit mótinu "Fittest in Cape Town“ um síðustu helgi. Sigurinn færði henni sæti á heimsleikunum næsta haust. 5. febrúar 2019 12:30
Katrín Tanja: Nú getum við verið vinir aftur Katrín Tanja Davíðsdóttir varð um helgina fyrsti íslenski CrossFit keppandinn til að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana í Madison í ágúst. 4. febrúar 2019 14:00