Kaldast á landinu í útjaðri Reykjavíkur, 21 stigs frost Kristján Már Unnarsson skrifar 2. febrúar 2019 11:30 Úr Víðidal í Reykjavík í dag. Elliðaár í forgrunni. Vísir/KMU.
Mesta frost á landinu í nótt og í morgun hefur mælst á tveimur veðurstöðvum í jaðri Reykjavíkur, á Sandskeiði og á nýrri mælistöð í hesthúsahverfinu í Víðidal við Elliðaár. Á Sandskeiði mældist mest frost í nótt -21,5 °C og í Víðidal -21,3 °C, samkvæmt vef Veðurstofunnar. Á Þingvöllum mældist frostið -19,5 °C. Lítið hefur dregið úr frostinu með morgninum. Mælirinn í Víðidal sýndi -20,5 °C klukkan 10 og -19,9 °C klukkan 11. Sjaldgæft er að á Reykjavíkursvæðinu mælist mesti kuldinn á landinu. Á einni stöð á hálendinu hefur þó mælst kaldara í morgun, í Veiðivatnahrauni, -21,9 °C. Sjá mátti álftir á Elliðaánum í frostinu í Víðidal í dag. Seláshverfið í baksýn og enn fjær Esja, Úlfarsfell og Móskarðshnjúkar.Vísir/KMU.Mildast á landinu í morgun hefur verið í Vestmannaeyjum og á Austfjörðum. Í Vestmannaeyjabæ var frostið -1,3 í morgun og austanlands voru -1,9 °C á Vattarnesi. Veðurstofan spáir frosti á öllu landinu í dag, -5 til -15 stig. Á morgun er spáð stífri austanátt sunnanlands og snjókomu með köflum og minnkandi frosti, en hægari vindi og þurru fyrir norðan með talsverðu frosti þar.
Borgarstjórn Veður Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Sjá meira