Rær öllum árum í átt til Tókýó Hjörvar Ólafsson skrifar 29. janúar 2019 17:30 Kári Gunnarsson. vísir/valli
Til þess að ætlunarverk hans, að komast á Ólympuleikana, takist þarf hann að vera í einu af 80 efstu sætunum á heimslistanum í maí á næsta ári. Þá er Kári Gunnarsson með sem markmið að komast inn á heimsmeistaramótið sem haldið verður í ágúst síðar á þessu ári, en til þess þarf hann að vera á meðal 110 efstu á heimslistanum í maí á þessu ári. Kári ætlar svo að fara á Evrópuleikana sem verða haldnir í annað skipti í júní í sumar í Hvíta-Rússlandi. Eins og staðan er núna er nánast öruggt að hann verði á meðal þátttakenda á því móti. „Ég hef sett stefnuna á að fara á Ólympíuleikana árið 2020 og það eru haldin mót sem gefa stig til þess að hækka á heimslistanum og er undankeppni Ólympíuleikanna á tímabilinu frá maí á þessu ári fram í maí á næsta ári. Það er svo staða á heimslistanum í maí á næsta ári sem ákvarðar það hvort ég kemst á leikana eður ei,“ sagði Kári í samtali við Fréttablaðið um komandi misseri. Eftir að hafa verið í námi síðustu ár einblínir Kári nú alfarið á badmintonleikinn og æfir og keppir sem atvinnumaður í greininni í Madrid á Spáni þar sem hann æfir með spænska landsliðsmanninum Pablo Abian sem er í kringum 40. sæti á heimslistanum. Þegar Kári setti sér það markmið að komast á Ólympíuleika var hann í 1.000. sæti á heimslistanum, en hefur síðan þá klifrað upp í 170. sæti og þarf að klifra upp um um það bil 90 sæti í viðbót til þess að ná markmiði sínu. Það er um það bil ár síðan hann ákvað að taka badmintonið fastari tökum og setti sér það markmið að komast á Ólympíuleikana. Til þess að það takist þarf Kári að vera iðinn við að keppa á mótum á þessu ári og því næsta, en hann mun keppa á um það bil 25 mótum um allan heim næsta eina og hálfa árið. „Þetta er vissulega mikil vinna að koma sér upp heimslistann, en markmiðið er aftur á móti vel raunhæft. Ég æfi með spilurum sem eru á topp 100 og á góðum degi vinn ég besta spilarann í hópnum sem er í 40. sæti á heimslistanum. Ég æfi 5-6 tíma á dag og er stöðugt að bæta mig. Ég er að gera alla réttu hlutina og mér finnst eðlilegt að stefna á það að vera í 80. sæti á listanum eftir rúmt ár,“ segir Kári. Kári er fæddur og uppalinn í Danmörku þar sem mikil hefð er fyrir badminton og landið hefur alið af sér afar sterka badmintonspilara. Nýverið flutti hann til Spánar, en þar er hann að elta ástina og ekki skemmir fyrir að hann getur æft við góðar aðstæður með góðum badmintonspilurum. „Það er þægileg tilfinning að vera kominn á þann stað að vera með þátttökurétt á þeim mótum sem veita stig og eru í undankeppni Ólympíuleikanna og heimsmeistaramótsins og að vera búinn að klífa metorðastigann á það svæði sem mér finnst ég eiga heima á. Það að þurfa ekki lengur að spila mig inn á þessi mót er gott fyrsta skref. Ég hef aldrei lagt jafn mikla vinnu og varið jafn miklum tíma í badmintonið og ég finn fyrir því að ég er búinn að bæta mig töluvert undanfarið. Ég hugsa mikið um andlega þáttinn og hef núna tíma til þess að leikgreina minn leik með því að skoða leiki mína, læra af mistökum mínum og skoða hvernig ég get gert betur. Mér finnst vopnabúrið mitt fjölbreyttara núna en það var áður og það kannski vantar helst stöðugleika í leikjum mínum gegn sterkum andstæðingum,“ segir hann um stöðu sína á þessari stundu. „Það er mér mikil hvatning að fara á mótið fyrir Íslands hönd, en það voru átta einstaklingar sem kepptu fyrir þjóðina á síðustu sumarólympíuleikum. Það fyllir mig alltaf miklu stolti að keppa með merki Íslands á bakinu og að sjá íslenska fánann meðan ég keppi. Ég vona innilega að ég bætist í þann flotta flokk afreksíþróttafólks sem fer til Tókýó,“ sagði hann um framhaldið.
Aðrar íþróttir Badminton Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira