Sá þrettán ára stúlku stíga upp í rútu og ákvað að ræna henni Samúel Karl Ólason skrifar 14. janúar 2019 23:06 Jake Thomas Patterson. Vísir/AP
Hinn 21 árs gamli Jake Thomas Patterson, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða foreldra þrettán ára gamallar stúlku og ræna henni, sá hana stíga upp í skólarútu og ákvað að ræna henni. Þann 15. október braust hann inn á heimili þeirra og lét verða af morðunum og mannráninu. Stúlkan, Jayme Closs, fannst í síðustu viku þegar hún gekk að konu í rúmlega hundrað kílómetra fjarlægð frá heimili sínu. Það hefur ekki legið fyrir af hverju Patterson ákvað að ræna Closs og myrða foreldra hennar en í dómsskjölum kemur fram að hann virðist hafa valið hana af handahófi. Saksóknarar segja Patterson ekki hafa séð Closs áður né hafi hann vitað hver hún væri þegar hann sá hana fyrst. Hann hafi þó þegar í stað ákveðið að ræna henni og undirbjó hann sig vel fyrir mannránið. Meðal annars rakaði hann af sér allt hár, til að vera fullviss um að hann myndi ekki skilja hár eftir á vettvangi glæpsins. Í áðurnefndum skjölum, sem NBC News vitna í, kemur einnig fram að lík föður Closs hafi fundist við útidyr heimilis þeirra og hann hafi verið með verulega áverka á höfði og andliti. Þá höfðu Closs og móðir hennar falið sig í baðkari þeirra. Patterson hefur viðurkennt að hafa sparkað upp hurðina, bundið Closs og skotið móður hennar í höfuðið með haglabyssu. Hann lá ekki undir grun vegna morðanna og mannránsins, fyrr en Closs slapp og benti lögregluþjónum á hann. Þegar Patterson var handtekinn virðist sem hann hafi verið að keyra um hverfið og leita að stúlkunni. Frænkur Jayme Closs ræddu við CBS um málið og það að hún hefði fundist.
Bandaríkin Tengdar fréttir Ákærður fyrir að ræna stúlkunni og myrða foreldra hennar Lögregluyfirvöld í Wisconsin í Bandaríkjunum hafa ákært hinn 21 árs gamla Jake Thomas Patterson fyrir að ræna hinni 13 ára gömlu Jayme Closs og myrða foreldra hennar í október síðastliðnum. 11. janúar 2019 21:29 Fannst á lífi 87 dögum eftir morðið á foreldrunum Haft er eftir kennara við skóla á svæðinu að nágranni hafi gengið fram á Closs á fimmtudag. 11. janúar 2019 07:41 Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sjá meira
Ákærður fyrir að ræna stúlkunni og myrða foreldra hennar Lögregluyfirvöld í Wisconsin í Bandaríkjunum hafa ákært hinn 21 árs gamla Jake Thomas Patterson fyrir að ræna hinni 13 ára gömlu Jayme Closs og myrða foreldra hennar í október síðastliðnum. 11. janúar 2019 21:29
Fannst á lífi 87 dögum eftir morðið á foreldrunum Haft er eftir kennara við skóla á svæðinu að nágranni hafi gengið fram á Closs á fimmtudag. 11. janúar 2019 07:41