Brá þegar hún fékk plastþræði í kaffisúkkulaði frá Góu Kolbeinn Tumi Daðason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 20. desember 2018 15:34 Plastþræðirnir sem voru í fyllingu Kaffisúkkulaðsins.
Láru Kristínu Brynjólfsdóttur segir það hafa verið heldur betur óskemmtilega lífsreynsla þegar hún hugðist gæða sér á Lindu kaffisúkkulaði frá Góu fyrir helgina. Þegar hún var hálfnuð með súkkulaðistykkið uppgötvaði hún að inn í því leyndust plastþræðir. Framleiðslustjóri Góu segir plastið hættulaust, um einangrað tilfelli sé að ræða en ef fleiri tilfelli komi upp verði varan innkölluð. „Ég var með þetta fast í tönnunum og hálsinum og þá fattaði ég að þetta væri ekki alveg eðlilegt,“ segir Lára í samtali við Vísi. Lára tók myndir af plastþráðunum sem Lára segir að hafi verið falinn sem Lára keypti í verslun í Reykjavík. Hefur hún trú á því að hún hafi borðað eitthvað af plastþráðunum. „Ég fékk algjört sjokk og ég varð hrædd þar sem þetta var í hálsinum á mér. Ég er eftir mig eftir þetta vegna þess að nú pæli ég hvort það sé eitthvað inn í súkkulaði þegar ég er að borða það,“ segir Lára sem segir að þræðirnir hafi verið fleiri en hún henti súkkulaðinu um leið enda gat hún ekki hugsað sér að klára það eftir að hafa uppgötvað aðskotahlutinn.Skipta á plastþráðunum hvítu út fyrir bláa.Ósátt með skýringar Þá er hún nokkuð ósátt við viðbrögð Góu vegna málsins. Var hún beðin um að koma með plastþræðina til þeirra og gerði hún það á mánudaginn. Þar var hún leyst út með konfektkassa, bingókúlupakka og súkkulaðistykki. Lára segist hins vegar ekki hafa haft mikinn áhuga á því að borða súkkulaði eftir að hafa uppgötvað plastþræðina í kaffisúkkulaðinu. Hjá Góu var henni sagt að málið yrði skoðað og haft yrði samband við hana fljótlega. Lára segist hafa viljað að Góa gripi til einhverra aðgerða vegna málsins enda gæti það reynst hættulegt leynist slíkir plastþræðir í fleiri súkkulaðistykkjum. Lára segist hafa fengið skilaboð frá Góu í morgun þess efnis að ekki væri vitað hvað það væri sem leynst hafi í súkkulaðinu. Þegar hún tjáði viðkomandi hins vegar að hún sætti sig ekki við þær skýringar og ætlaði með málið lengra kom annað hljóð í strokkinn. Þá hafi hún fengið þær upplýsingar að vitað væri hvað hefði leynst í súkkulaðistykkinu og framleiðslustjóri Góu hefði hug á því að tala við hana. Enn hefur hún þó ekkert heyrt frá Góu vegna málsins. Þá segir Lára að Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sem sér um einnig Garðabæ þar sem verksmiðja Góu er staðsett, hafi haft samband við sig og vilji skoða málið.Umrætt Kaffisúkkulaði sem nýtur töluverðra vinsælda hér á landi.GóaAldrei þurft að innkalla vöru Jóhann Ögri Elvarsson, framleiðslustjóri hjá Góu, segir málið eiga sér eðlilegar skýringar. Hann harmar þó atvikið. „Mér þykir mjög leitt að þetta hafi skeð,“ segir Jóhann Ögri og segir það afar sjaldgæft að fyrirtækið fái kvartanir. Þá hafi Góa aldrei þurft að innkalla vöru. Jóhann útskýrir að við athugun á búnaðinum í framleiðslusalnum, eftir að kvörtunin barst, hafi komið í ljós að um var að ræða hár úr litlum burstum sem notaðir eru til að bursta af bökkunum sem fyllingunni er sprautuð í. Ein festingin í burstanum sem heludr búnti af stuttum plasthárum hafði losnað og farið í fyllinguna. Fyllingin er svo sprautuð í mótin við mikinn hita og þess vegna rúllast plasthárin upp. Framleiðslustjórinn segir að um einangrað tilfelli sé að ræða. Komi upp fleiri tilfelli verði varan innkölluð. Þá bendir Jóhann á að Góa sé með málmleitartæki á öllum vörum. Plast geti þó sloppið í gegn. Þetta plast sé hvítt, líkt og fyllingin, og því erfitt að greina. Verið sé að skipta hvítu plasthárunum út fyrir blá svo þau sjáist betur. Þá fari þeir reglulega yfir allan framleiðslubúnað. „Þetta er ekkert hættulegt fyrir mannslíkamann að fá svona. Bara eins og mjög stuttur tannþráður,“ segir Jóhann. Hann skilji þó vel að Lára hafi kúgast þegar hún borðaði stykkið. Þau svör fengust hjá heilbrigðiseftirlitinu að því hefði borist tilkynning vegna málsins sem væri komið í farveg hjá eftirlitinu.
Neytendur Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira