Spá allt að tíu stiga frosti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. nóvember 2018 08:27 Frá Mývatni en það gæti orðið kalt inn til sveita á norðausturhluta landsins. vísir/vilhelm
Búast má við allt að tíu stiga frosti í innsveitum norðaustan lands í nótt að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Heiðskírt verður á þessum hluta landsins og mun því frysta, og frostið gæti náð tveggja stafa tölu. Í hugleiðingum veðurfræðings segir jafnframt að í dag verði hæg austlæg átt, víða skýjað og dálítil væta af og til en á Norður- og Austurlandi verður yfirleitt þurrt og bjart. Hann mun síðan snúast í norðan 8 til 13 norðvestan til á landnu sem og á Snæfellsnesi og Reykjanesi með rigningu í kvöld en vindur verður hægari annars staðar á landinu og minni úrkoma. Hiti verður víða 1 til 6 stig. Á morgun er svo áfram spáð hægri austlægri átt, léttskýjuðu veðri og þá mun kólna. Frost 2 til 10 stig annaðkvöld, kaldast í innsveitum norðanlands, og frostlaust með suðurströndinni.Veðurhorfur á landinu:Austlæg átt 3-8 m/s og léttskýjað á Norður- og Austurlandi, en skýjað með köflum og sums staðar smáskúrir sunnan- og vestanlands. Norðlæg átt 8-13 og dálítil rigning um landið norðvestanvert í kvöld, annars hægari. Hiti 0 til 6 stig en frost 0 til 6 stig norðaustantil. Hæg austlæg eða breytileg átt morgun og léttskýjað, en stöku skúrir suðaustanlands. Kólnar heldur.Á fimmtudag:Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Yfirleitt þurrt um sunnanvert landið og hiti allt að 6 stigum syðst, en frost 0 til 5 stig norðantil á landinu.Á föstudag, laugardag og sunnudag:Hæg breytileg átt og léttskýjað. Frost 3 til 8 stig í innsveitum fyrir norðan, annars í kringum frostmark og allt að 6 stiga hiti með suður- og vesturströndinni.Á mánudag:Gengur í strekkings suðaustanátt með rigningu sunnan- og vestantil á landinu. Hiti 0 til 6 stig. Hægari vindur, þurrt og bjart norðaustanlands og frost 0 til 6 stig.
Veður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira