Rigning og rok í helgarkortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. nóvember 2018 07:54 Það verður hlýtt en blautt um helgina. vísir/hanna
Það verður vindasamt og blautt víða um land um helgina ef marka má veðurspá Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í dag verði stíf suðaustanátt sunnanlands með rigningu á köflum en hægari vindur og bjart víða norðan lands. Í nótt á svo að hvessa úr suðaustri og mun vindur jafnvel ná stormstyrk í Öræfum og Mýrdal. Seinni partinn mun svo draga heldur úr vindi nema á Vestfjörðum þar sem mun herða á honum. Upp úr miðnætti leggst svo þétt úrkomusvæði að austanverðu landinu. Því er spáð að það rigni í framhaldinu talsvert á Suðausturlandi og Austfjörðum og áfram til sunnudags, þó að heldur hafi dregið úr rigningunni þá. Um helgina má því búast við vatnavöxtum suðaustan lands og eru ferðamenn beðnir að hafa það í huga. Það verður hlýtt í veðri fram á sunnudag en þá fer að kólna, einkum norðan til.Veðurhorfur næstu daga:Austlæg átt, 10-18 m/s, hvassast við fjöll syðst á landinu og rigning eða súld með köflum, en hægari fyrir norðan og bjart með köflum. Vaxandi norðaustanátt í nótt, 13-23 m/s á morgun, hvassast á SA-landi um morguninn, en á Vestfjörðum um kvöldið. Rignir á A-verðu landinu í nótt og á morgun, talsverð eða mikil úrkoma SA-lands, en annars úrkomulítið. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast með S-ströndinni.Á laugardag:Austan og norðaustan 13-20 m/s, hvassast SA-til um morguninn, en á Vestfjörðum um kvöldið. Víða rigning, talsverð A-lands, en úrkomulítið SV-til. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast syðst.Á sunnudag:Norðaustan 13-20 m/s og rigning eða slydda NV-til, en annars austlæg átt, 8-13 og væta með köflum. Hiti 2 til 7 stig að deginum, en frystir inn til landsins um kvöldið.Á mánudag:Stíf norðaustanátt NV-lands, en annars mun hægari vindur. Rigning eða slydda á N- og A-verðu landinu, annars yfirleitt bjartviðri. Hiti 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira