Enn ein lægðin nálgast landið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. október 2018 07:07 Það bætir í vind og úrkomu með lægðinni í kvöld og nótt. vísir/vilhelm
Enn ein haustlægðin mun nálgast landið seint í dag úr suðvestri að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Áður en lægðin kemur verður hins vegar hægur vindur á landinu og þurrt nokkuð víða en úrkomusvæði lónar þó yfir syðsta hluta landsins með einhverri rigningu eða slyddu á köflum á því svæði. Með lægðinni sem kemur seint í dag bætir svo í vind og úrkomu og er útlit fyrir strekking eða allhvassan vind í kvöld og nótt með talsverðri rigningu en slyddu eða snjókomu um landið norðanvert. „Á morgun blæs vindur af ýmsum áttum og víða má búast við úrkomu, hann ætti þó að hanga þurr að mestu austanlands. Annað kvöld verður áttin síðan orðin norðlæg og eru horfur á að norðanátt verði ríkjandi á fimmtudag og föstudag með kólnandi veðri og frystir á endanum um allt land. Eins og svo oft áður fylgja él norðanáttinni og verða þau einkum bundin við norðanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Hæg breytileg átt í dag og þurrt, en rigning eða slydda með köflum sunnanlands. Bætir í vind og úrkomu seint í dag. Strekkingur eða allhvass vindur í kvöld og nótt og talsverð rigning, en slydda eða snjókoma um landið norðanvert.Suðvestan 10-18 m/s á morgun og rigning eða slydda, en norðaustlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Snýst í norðan 8-13 annað kvöld með éljum, en rofar til sunnanlands.Hiti lengst af kringum frostmark um landið norðanvert, en hiti 1 til 5 stig sunnantil og hlýnar þar í kvöld. Fer kólnandi víða um land annað kvöld.Á miðvikudag:Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en norðaustlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Snýst í norðan 8-13 undir kvöld með éljum, en rofar til sunnanlands. Kólnandi veður, hiti um og yfir frostmarki um kvöldið.Á fimmtudag:Norðlæg átt 5-13 og él, einkum norðantil á landinu. Hiti um og undir frostmarki.Á föstudag:Norðan 8-13, en 13-18 austanlands. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en bjart sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.
Veður Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira