Hafa borið kennsl á líkið sem fannst niðurbútað við árbakka Kalix Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. október 2018 15:58 Í frétt á vef SVT segir að lögreglan vilji þannig hvorki gefa upp aldur mannsins né hvaðan hann sé en greint hefur verið frá því í sænskum fjölmiðlum að um ungan mann sé að ræða. vísir/getty
Lögreglan í Svíþjóð hefur borið kennsl á líkamshluta sem fundust í ánni Kalix í norðurhluta landsins í gær. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar í dag en lögreglan vill ekkert gefa upp um hver maðurinn er þar sem ættingjar hans hafa ekki verið upplýstir um málið. Í frétt á vef SVT segir að lögreglan vilji þannig hvorki gefa upp aldur mannsins né hvaðan hann sé en greint hefur verið frá því í sænskum fjölmiðlum að um ungan mann sé að ræða. Lögreglan sagði á blaðamannafundinum að henni hefðu borist ábendingar frá almenningi vegna málsins en hún óskaði áfram eftir því að hver sá sem telur sig búa yfir upplýsingum um málið gefi sig fram. Grunur leikur á að manninum hafi verið ráðinn bani en lík hans hafði verið bútað niður. Þeir líkamshlutar sem fundust í gær voru höfuð, fótleggir og handleggir en búkurinn er enn ófundinn. Það var sjötugur maður sem labbaði fram á líkamshlutana þegar hann var á gangi meðfram ánni Kalix í gærmorgun með hund sinn. Hann kom auga á líkamshlutana á árbakkanum. „Þetta er það versta sem ég hef séð. Ég vil bara gleyma því sem ég sá,“ sagði maðurinn í samtali við Aftonbladet. Á milli tuttugu og þrjátíu lögreglumenn vinna nú að rannsókn málsins.
Norðurlönd Tengdar fréttir Fundu líkamshluta við árbakka í norðurhluta Svíþjóðar Lögregla í Svíþjóð rannsakar nú andlát manns eftir að höfuð, fótleggir og handleggir fundust í ánni Kalix í norðurhluta landsins. 25. október 2018 13:16 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira
Fundu líkamshluta við árbakka í norðurhluta Svíþjóðar Lögregla í Svíþjóð rannsakar nú andlát manns eftir að höfuð, fótleggir og handleggir fundust í ánni Kalix í norðurhluta landsins. 25. október 2018 13:16