Stúlkan á batavegi eftir óhapp á læknabekk Kjartan Kjartansson skrifar 4. október 2018 19:30 Atvikið átti sér stað á Læknavaktinni í Austurveri á sunnudag. Vísir/Vilhelm
Faðir tveggja ára stúlku sem klemmdist með höfuðið í rafknúnum bekk á Læknavaktinni um helgina segir hana alla að koma til eftir óhappið. Framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar segir enga ákvörðun hafa enn verið tekna um hvenær eða hvort læknabekkir þar verði aftur gerðir virkir aftur. Lyfjastofnun er ekki sögð hafa fundið neitt athugavert við bekkina eða uppsetningu þeirra. Höfuð stúlkunnar klemmdist í rafknúnum bekk þegar hann var með foreldrum sínum og tveimur börnum til viðbótar í skoðun á Læknavaktinni á sunnudag. Albert Símonarson, faðir stúlkunnar, sagði Vísi að hann hefði óttast um líf dóttur sinnar þegar hún var orðin rauðblá í framan sökum þrýstings og súrefnisskorts þegar armar bekkjarins byrjuðu að klemmast saman. Læknavaktin tók bekkina úr sambandi við rafmagn eftir óhappið á meðan gengið væri úr skugga um öryggi þeirra. Mbl.is hefur eftir lögfræðingi Lyfjastofnunar að sérfræðingar hennar hafi kannað bekkina og rætt við starfsfólk Læknavaktarinnar í morgun. Bekkurinn hafi reynst rétt uppsettur og ekkert virtist að honum. Ætlunin sé að óska eftir upplýsingum frá Læknavaktinni um þjálfun starfsfólks og hvernig kennslu á tækið sé háttað þar. Faðir stúlkunnar sagði að læknirinn sem skoðaði dóttur hans hafi ekki kunnað á bekkinn.Ekki virkjaðir aftur að svo stöddu Gunnar Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar, segist ekki hafa fengið neina niðurstöðu frá Lyfjastofnun um bekkinn. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um að virkja bekkina aftur og að það verði ekki gert að svo stöddu. „Við viljum vera örugg í okkar aðgerðum að taka þá aftur í notkun. Ef niðurstaðan er sú að það er ekkert að tækinu þá verðum við að vera sátt,“ segir hann við Vísi. Skoðað hafi verið hvernig kennslu starfsmanna á bekkina er háttað. Gunnar Örn segir að tryggja verði að allir kunni á þá.Slapp við heilablæðingu og beinbrot Stúlkan ber sig vel eftir atvikum og er öll að koma til, að sögn Alberts föður hennar. Hún tognaði illa í hnakka og er bólgin og marin eftir bekkinn. „Að öðru leyti slapp hún bara ótrúlega vel frá þessu og er bara í rólegheitum að jafna sig,“ segir Albert. Óttast hafði verið að blætt hefði getað inn á heila stúlkunnar en Albert segir að hún hafi sloppið við það. Þá hafi engin bein brotnað eða brákast.
Tengdar fréttir Læknabekkirnir óvirkir meðan slysið er rannsakað Það eru hagsmunir allra. Þetta eru aðstæður sem maður vill ekki að komi fyrir aftur, segir Gunnar Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar. 1. október 2018 13:02 Óttaðist um líf tveggja ára dóttur sinnar er hún festi höfuðið í rafknúnum læknabekk Forsvarsmenn Læknavaktarinnar hafa ekki haft samband við fjölskylduna vegna málsins í dag, að sögn Alberts. 30. september 2018 19:10 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Læknabekkirnir óvirkir meðan slysið er rannsakað Það eru hagsmunir allra. Þetta eru aðstæður sem maður vill ekki að komi fyrir aftur, segir Gunnar Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar. 1. október 2018 13:02
Óttaðist um líf tveggja ára dóttur sinnar er hún festi höfuðið í rafknúnum læknabekk Forsvarsmenn Læknavaktarinnar hafa ekki haft samband við fjölskylduna vegna málsins í dag, að sögn Alberts. 30. september 2018 19:10